Handbolti

Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stefán Árnason hefur verið þjálfari um langt árabil en hefur nú tekið stökkið til Kúveit.
Stefán Árnason hefur verið þjálfari um langt árabil en hefur nú tekið stökkið til Kúveit. vísir/Viktor Freyr

Eftir að hafa verið sagt upp á fertugsafmælisdaginn hefur handboltaþjálfarinn Stefán Árnason á vit nýtta ævintýra. Hann þjálfar nú í Kúveit.

Stefán er með töluverða reynslu af þjálfun hér heima en hann stýrði til að mynda bæði Selfossi og KA í Olís-deildinni hér heima og varð svo aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar í Aftureldingu. Hann tók við sem aðalþjálfari þegar Gunnar færði sig til Hauka en var sagt upp í vor, og það á sjálfan fertugsafmælisdaginn.

„Svona er bara boltinn, það er bara þannig. Ég er búinn að vera í Aftureldingu í fjögur frábær ár. Fyrst með Gunna Magg og með yngri flokkana í þrjú ár og síðan tók ég við meistaraflokknum. Þetta var ótrúlega góður tími og á mínum 20 ára þjálfaraferli örugglega mín bestu ár í þjálfun,“ segir Stefán í Sportpakkanum á Sýn.

Aðeins flóknara en að fara til Köben

Líkt og áður segir hefur Stefán komið víða við hér heima en eftir uppsögnina tók hann stórt stökk, alla leið til Kúveit, þar sem hann mun aðstoða Aron Kristjánsson með landsliðið auk þess að stýra yngri landsliðum.

„Hérna er lífið svolítið öðruvísi en maður er vanur. Það var nú viðbúið og ein af ástæðunum fyrir því að maður er að fara í svona verkefni. Það er svolítið heitt hérna, á mælinum eru þetta 43-45 gráður,“

„Maður fær nú ekki mörg svona tækifæri að flytja hinu megin á hnöttinn,“ segir Stefán.

Stefán var fljótur að segja já þegar Aron hafði við hann samband. Það gekk hratt og vel að ganga frá samningum en þegar kom að flutningum var það eilítið snúnara mál.

Þetta hafði stuttan aðdraganda en það tekur smá tíma að safna saman skjölum og skila inn allskonar hlutum til að fá leyfi til að vinna hérna.“

Þannig að þú ert búinn að liggja í pappírsvinnu í aðdragandanum?

„Já, þetta er aðeins flóknara en að fljúga til Danmerkur. Að ætla að fljúga hingað og fara að vinna. Það þarf nokkur skjöl og læknisskoðun, og svo aðra læknisskoðun, til að sýna fram á að maður sé nú ekki með einhverja smitsjúkdóma og eitthvað. En það góða er að maður sér að maður er við hestaheilsu,“ segir Stefán léttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×