Sport

Loka­dagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Ís­lendingarnir?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hér má sjá Íslendingana sex sem keppa á heimsleikunum í CrossFit í ár.
Hér má sjá Íslendingana sex sem keppa á heimsleikunum í CrossFit í ár. @bergrosbjornsdottir

Úrslitin ráðast á heimsleikunum í CrossFit í dag en nýir heimsmeistarar verða krýndir í tuttugasta sinn í Kaliforníu í kvöld. Það verður hægt að fylgjast með lokadeginum í beinni.

Bergrós Björnsdóttir keppir í kvennaflokknum og er í sautjánda sæti af þrjátíu keppendum eftir þrjá fyrstu keppnisdagana. Best hefur hún náð fjórða sætinu en hún hefur verið meðal tíu efstu í þremur af fyrstu sautján greinunum. Í dag fara fram þrjár síðustu greinarnar.

Björgvin Karl Guðmundsson og félagar í norska CrossFit Oslo Kriger liðinu eru í þriðja sæti fyrir lokadaginn og eiga því góða möguleika á því að vinna til verðlauna. Fyrsta sætið er þó fjarlægt þar sem bandarísku liðin CrossFit Mayhem og CrossFit Whip eru meira en hundrað stigum fyrir ofan.

Íslenska liðið CrossFit Reykjavík gaf aðeins eftir í gær og datt niður í tíunda sætið en stefnir örugglega á að hækka sig á lokadeginum þar sem fara fram fjórar síðustu greinarnar.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu frá keppni dagsins af Youtube-síðu heimsleikanna.

  • Tímasetningar á lokadeginum á íslenskum tíma:
  • Klukkan 16:00 – Grein 18 hjá einstaklingum
  • Klukkan 17:45 – Liðakeppni 9. og 10. grein
  • Klukkan 18:40 – Liðakeppni 11. grein
  • Klukkan 19:40 – Liðakeppni 12. grein
  • Klukkan 21:00 – Grein 19 hjá einstaklingum
  • Klukkan 22:30 – Grein 20 hjá einstaklingum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×