Formúla 1

Norris kom sér aftur á sigurbraut

Andri Broddason skrifar
Lando Norris náði sínum fyrsta sigri síðan hann varð heimsmeistari í Formúlu 1 á síðasta tímabili.
Lando Norris náði sínum fyrsta sigri síðan hann varð heimsmeistari í Formúlu 1 á síðasta tímabili. Mark Thompson/Getty Images

Ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, Lando Norris, náði sínum fyrsta sigri á tímabilinu í ungverska kappakstrinum í dag. Miklar sviptingar voru í toppslag kappakstursins.

Lando Norris byrjaði keppnina á ráspól og keyrði frábærlega í Ungverjalandi. Oscar Piastri, liðsfélagi Norris hjá Mclaren, var sá eini sem hefði getað ógnað sigri Norris en bíllinn hans bilaði og gat hann ekki klárað keppnina.

Max Verstappen náði öðru sæti keppninnar eftir að hafa kvartað verulega yfir Red Bull-bíl sínum allt tímabilið og sérstaklega um helgina. Til að byrja með var Lewis Hamilton hraðari en Verstappen en átti erfitt með að taka fram úr honum.

Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, náði að bæta forskot sitt á toppi heimsmeistaramótsins með því að enda í þriðja sæti. Lewis Hamilton og George Russell, sem eru hans helstu keppinautar í heimsmeistaramótinu, voru fjarri góðu gamni.

Hamilton átti að byrja annar eftir tímatökurnar í gær en fékk þriggja sæta refsingu fyrir að vera fyrir Oscar Piastri í tímatökunum. Hrakföllin héldu áfram að hrjá hann þar sem hann náði ekki að taka fram úr Verstappen þrátt fyrir að vera mun hraðari. Hann kláraði keppnina í fjórða sæti en liðsfélagi hans hjá Ferrari, Charles Leclerc, tekur sætið hans vegna þess að Hamilton endaði með fimm sekúndna refsingu.

George Russell byrjaði keppnina í sjötta sæti en vélin hans bilaði við að taka af stað og var hann orðinn næstsíðastur í fyrstu beygju kappakstursins. Hann náði að vinna sig upp í sjöunda sæti keppninnar en tapar stigum á bæði Hamilton og Antonelli sem eru fyrir ofan hann í heimsmeistaramóti Formúlu 1.

Þetta var síðasta keppni í Formúlu 1 fyrir sumarfrí sem stendur yfir í einn mánuð og er næsta keppni í Formúlu 1 hollenski kappaksturinn sem hefst í lok ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×