Sport

Bergrós, BKG og ís­lenska liðið á þriðja degi heimsleikanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísland á sex keppendur á heimsleikunum í ár og hér eru þau öll á setningarhátíðinni.
Ísland á sex keppendur á heimsleikunum í ár og hér eru þau öll á setningarhátíðinni. @guccivaldimarsdottir

Ísland á fulltrúa á tuttugustu heimsleikunum í CrossFit og hér má fylgjast með keppni á þriðja keppnisdegi af fjórum.

Bergrós Björnsdóttir er eini íslenski keppandinn í einstaklingsflokki en hún var í átjánda sæti hjá konunum eftir tvo fyrstu keppnisdagana.

Björgvin Karl Guðmundsson keppir með norska félaginu CrossFit Oslo Kriger og liðið var í fjórða sæti eftir tvo keppnisdaga.

Ísland á líka lið en krakkarnir í liði CrossFit Reykjavík voru í sjöunda sæti af tuttugu liðum eftir tvo daga.

Hér fyrir neðan má sjá beina útsendingu en einstaklingar keppa í fimm greinum í dag en liðin í þremur greinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×