Neytendur

Arion banki hækkar gjöld

Árni Sæberg skrifar
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Vísir/Vilhelm

Arion banki hefur tilkynnt um breytta verðskrá fyrir einstaklingsþjónustu bankans, sem tekur gildi þann 23. september. Flest gjöld hækka um þrjú til fimm prósent.

Í tölvubréfi bankans til viðskiptavina segir að á undanförnum árum hafi takmarkaðar breytingar verið gerðar á verðskrám, þrátt fyrir umtalsverða hækkun vísitölu neysluverðs.

„Nú hækkum við ýmsa gjaldaliði sem hafa staðið óbreyttir í mörg ár. Meðal annars liði þar sem við nýtum þjónustu þriðja aðila sem hefur hækkað sín verð á liðnum árum. Jafnframt eru sumir gjaldaliðir sameinaðir og aðrir fjarlægðir úr verðskrá.“

Nýja gjaldskrá einstaklinga hjá Arion banka má lesa hér. Í samantekt á vef Arion banka segir að helstu breytingar séu eftirfarandi:

Lán

  • Flest gjöld hækka um 3-5%.
  • Lánshæfismat frá Creditinfo hækkar úr 995 kr. í 1.550 kr. í samræmi við verðskrá Creditinfo.
  • Verðmat fasteigna framkvæmt af matsmönnum að kröfu bankans verður samkvæmt útlögðum kostnaði.
  • Rafrænir greiðsluseðlar hækka um 3% og verða 134 kr. ef lán er í skuldfærslu.
  • Póstlagðir greiðsluseðlar hækka úr 260 kr. í 400 kr. og úr 635 kr. í 695 kr. ef lán er ekki í skuldfærslu.

Útibú/þjónustuver

  • Flest þjónustugjöld hækka um 5%.
  • Eldri borgarar 67 ára og eldri og börn yngri en 18 ára greiða ekki afgreiðslugjald.
  • Ábyrgðarpóstur hækkar úr 1.495 kr. í 2.700 kr.

Greiðslukort

  • Endurútgáfa kreditkorts hækkar úr 2.100 kr. í 2.490 kr.
  • Rafrænir greiðsluseðlar hækka um 3% og verða 134 kr. ef reikningur er í skuldfærslu.
  • Póstlagðir greiðsluseðlar hækka úr 260 kr. í 400 kr. og úr 515 kr. í 550 kr. ef reikningur er ekki í skuldfærslu.
  • Stofn- og færslugjald greiðsludreifingar hækkar um 3%.
  • Afrit af gögnum/sölunótu hækkar um 4%.
  • SMS þjónusta hækkar úr 11 kr. í 12 kr.
  • Endurútgáfa debetkorts hækkar úr 1.290 kr. í 2.490 kr.

„Við hvetjum viðskiptavini til að nýta stafrænu þjónustuleiðirnar okkar sem almennt eru ódýrari en þjónusta veitt í útibúi eða þjónustuveri,“ segir í samantektinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×