Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Árni Sæberg skrifar 23. júlí 2026 13:36 Manninum var sleppt úr haldi á ótilgreindri lögreglustöð skömmu áður en hann braut aftur af sér. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu vegna brotahrinu síðan í febrúar, þegar honum var sleppt úr fangelsi eftir afplánun. Daginn áður en úrskurður var kveðinn upp var honum sleppt úr haldi lögreglu en gripinn á vettvangi innbrots með þýfi í fórum sínum skömmu seinna.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 14. júlí og staðfestur í Landsrétti þann 17., segir að Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar fjöldamörg ætluð brot mannsins, þar á meðal þjófnaði, hylmingarbrot, húsbrot, eignaspjöll, brot gegn lögum um fíkniefni, vopnalagabrot og minniháttar líkamsárásir. Ellefu brot á þrettán dögum Samkvæmt gögnum málsins sé hann grunaður um eitt brot í febrúar síðastliðnum, þrjú í mars, 16 í apríl, þrjú í maí, 10 í júní og 11 í þessum mánuði, júlí, en hann hafi verið handtekinn 13. júlí rétt fyrir klukkan 18:00 á vettvangi ætlaðs þjófnaðarbrots. „Honum hafði verið sleppt fyrr í gær, en var strax staðinn að þjófnaði í heimahús,“ segir í málsatvikalýsingu. Lögreglustjóri hafi krafist þess að maðurinn sæti gæsluvarðhaldi á meðan þessi mál eru rannsökuð og eftir atvikum á meðan dómsmál, sem kann að verða höfðað vegna þeirra, er rekið fyrir dómstólum. Þá kröfu byggi embættið á ákvæði laga um meðferð sakamála um gæsluvarðhald á grundvelli svokallaðrar síbrotagæslu. Á grundvelli fram lagðra gagna telji dómurinn að á manninum hvíli rökstuddur grunur um að hafa staðið að allflestum þeim brotum sem lögreglan rannsakar. Því sé uppfyllt því skilyrði sakamálalaga um gæsluvarðhald. Fjórir tugir brota Ætluð brot, alls fjórir tugir, eru framin á fárra mánaða tímabili allt frá því að varnaraðila var sleppt úr fangelsi 21. febrúar sl. og þar til hann var handtekinn í gær 13. júlí. Þar af eru 11 ætluð brot framin á síðastliðnum tveimur vikum. Með vísan til fjölda og eðlis brotanna er fallist á það með sækjanda að hætta sé á að varnaraðili haldi áfram brotum verði hann nú látinn laus.“ Því er uppfyllt skilyrði laganna fyrir því að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi vegna síbrota. Einnig í ljósi fjölda og eðlis þeirra brota sem maðurinn liggur undir rökstuddum grun um að hafa framið, fallist dómurinn á það með lögreglustjóra að verði öll brotin dæmd í einu séu sterkar líkur fyrir því að refsing fyrir þau verði ekki skilorðsbundinn. Vægari úrræði, svo sem farbann, sé ekki talið geta rofið þessa hrinu ætlaðra brota. Ekki þyki ástæða til þess að marka varðhaldinu skemmri tíma en lögreglustjóri krefst. Því skuli maðurinn sæta gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 11. ágúst.
Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Sjá meira