Segir Dag plata með úreltri skýrslu Árni Sæberg skrifar 22. júlí 2026 17:00 Dagur B. Eggertsson og Ásdís Kristjánsdóttir. Vísir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, fer hörðum orðum um skrif Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, í pistli undir yfirskriftinni „Dagur, bannað að plata!“ Dagur fjallaði fyrr í dag um tólf ára gamla skýrslu þar sem segir að upptaka evru myndi fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland. Ásdís bendir á að skýrslan hafi verið rituð í efnahagsumhverfi sem sé fyrir löngu liðið undir lok. „„
Verður ekki önnur ályktun dregin en að upptaka evru með aðild að mynbandalagi Evrópu muni fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.“ Þetta er ein af niðurstöðum sameiginlegrar skýrslu sem unnin var að frumkvæði og beiðni Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, Félags atvinnurekenda og Viðskiptaráðs árið 2014. Skýrslan var unnin af hópi sérfræðinga undir merkjum Alþjóðamálastofunnar Háskóla Íslands þegar viðræður um aðild að Evrópusambandinu voru settar á bið til að meta stöðu lykilmála og þeirra hagsmuna sem væru undir í viðræðunum,“ segir í upphafi aðsendrar greinar Dags, sem birtist á Vísi í morgun. Ávinningur meiri en kostnaður að mati höfunda Þá segir hann að mjög margt athyglisvert sé í skýrslunni, enda sé hún samtímaheimild um stöðu viðræðna. Ekki sé minnstur fengur að mati Ásgeirs Jónssonar, sem muni hafa skrifað stærstan hluta efnahags- og gjaldmiðlakaflans á kostum og göllum þess að taka upp evru í stað krónu. Á mannamáli megi draga greiningu skýrslunnar fram svona: „Sjálfstæða íslenska krónan hefur ekki veitt Íslandi raunverulegt peningalegt sjálfstæði með stöðugleika, heldur leitt til hærri og sveiflukenndari vaxta, meiri verðbólgu, gengissveiflna, viðskiptakostnaðar og reglulegrar þarfar fyrir gengisfellingar eða fjármagnshöft. Með evru myndi Ísland fórna formlegu sjálfstæði í vaxta- og gengismálum en fá í staðinn lægri verðbólgu og vexti, stöðugri fjármögnun, greiðsluhæfan alþjóðlegan gjaldmiðil, öflugri lánveitanda til þrautavara og aukin viðskipti. Ávinningurinn væri, að mati höfunda, miklu meiri en kostnaðurinn.“ Lætur vera að fjalla um aðra mikilvæga niðurstöðu Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, hefur nú svarað grein Dags með annarri slíkri undir yfirskriftinni Dagur, bannað að plata! Þar segir hún merkilegt að Dagur láti undir höfuð leggjast að fjalla um eina helstu niðurstöðu skýrslunnar, sem sé eftirfarandi: „Vitanlega kemur kostnaður á móti. Það er fórn að gefa eftir sjálfstæði í peningamálum og einhverju leyti sjálfstæði ríkisfjármála, jafnvel þó íslenskum stjórnvöldum hafi ekki tekist vel upp við beitingu þessara hagstjórnartækja. Líklegt er að í kjölfarið muni fylgja meiri breytileiki í atvinnuleysi samfara hagsveiflum þó langtíma atvinnustig ætti ekki að verða fyrir áhrifum. Þá liggur einnig fyrir að samhliða upptöku evru verða töluverðar stofnanabreytingar að eiga sér stað þar sem hærri nafnlaunahækkanir hérlendis en erlendis munu draga verulegan dilk á eftir sér með verri samkeppnisstöðu og síðan kreppu. ESB er samband fullvalda ríkja og Íslendingar munu áfram þurfa að bera ábyrgð á sinni efnahagsstjórn, og það mun velta á þeim hvernig til tekst að vinna úr nýju stofnanafyrirkomulagi.“ Sjálfstæðri peningastefnu fórnað Hún segir staðreyndina þá að með inngöngu í myntbandalag sé sjálfstæðri peningastefnu fórnað þar sem kostnaðurinn við hagstjórnarmistök, sem komi niður á samkeppnishæfni Íslands, birtist einkum í formi atvinnuleysis en ekki gengissveiflna. „Dæmi um slík mistök blasa við í dag þar sem skattahækkanir núverandi ríkisstjórnar munu draga úr samkeppnishæfni þjóðarbúsins – Ísland er þegar háskattaríki í alþjóðlegum samanburði.“ Þá sé áhugavert að skýrslan byggi á samanburði á úreltri peningastefnu sem hafi verið rekin í gjaldeyrishöftum og hafi síðan verið endurskoðuð og tekið miklum breytingum í samræmi við tillögu sérfræðihóps sem núverandi seðlabankastjóri hafi setið í ásamt Ásdísi sjálfri og Illuga Gunnarssyni. Greinin hundsi farsæla þróun peningastefnunnar Loks segir Ásdís að sá mikli velferðarábati, sem nást eigi með inngöngu í ESB samkvæmt Degi byggi sem sagt á efnahagsumhverfi sem sé fyrir löngu liðið undir lok. Grein hans hundsi með öllu farsæla þróun sem orðið hafi á íslenskri peningastefnu frá þeim tíma. Almennt séu þjóðartekjur, atvinnuleysi, atvinnuþátttaka, tekjujöfnuður og fátækt þeir hlutlægu mælikvarðar sem horft sé til þegar velferð er metin. Ísland sé í hópi tekjuhæstu þjóða heims, atvinnuleysi að jafnaði lágt í samanburði við Evrópusambandsríki og atvinnuþátttaka nánast hvergi hærri. Þá sé tekjujöfnuður sá mesti í heimi og fátækt lítil. „Með öðrum orðum þá er velferð nánast hvergi meiri en á Íslandi og okkur tókst að vera fremst meðal ríkja án inngöngu í Evrópusambandið. Það væri áhugavert að sjá haldbær rök fyrir því hvernig upptaka evru muni bæta þessa þegar framúrskarandi mælikvarða!“
Efnahagsmál Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira