Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Jakob Bjarnar skrifar 22. júlí 2026 15:35 Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir það mikla áskorun að gæta að samkeppnissjónarmiðum í örríki á borð við Ísland. vísir/arnar Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir eftirlitið vanbúið til að taka á þeim mikilvægu verkefnum sem stofnunin standi frammi fyrir.
Páll Gunnar var gestur Bítisins í morgun og þeir Sigmar Vilhjálmsson og Heimir Karlsson spurðu hann spjörunum úr. Segir þau alltof fá hjá Samkeppniseftirlitinu Umsjónarmenn hófu leik á því að spyrja hreinlega út í það hvort það væri nokkur möguleiki á eðlilegri samkeppni hjá örþjóð eins og Íslandi? „Jú, ég hugsa það nú og þetta er mikil áskorun. Við erum úti í miðju Atlantshafi, flutningsleiðir eru langar og svo framvegis. Það er ekkert auðvelt að framleiða matvæli á Íslandi. Svo erum við með sérstaka krónu sem fælir erlenda fjárfesta frá þannig að markaðir eru oft lokaðir líka. Við erum fá.“ Páll Gunnar sagði keppinauta fáa, þeir vissu mikið hver um annan og ættu því tiltölulega auðvelt með að átta sig á því hvað það myndi þýða að sækja markaðshlutdeild hjá keppinautunum. Ýmislegt bætist við, svo sem einsleitt eignarhald á fyrirtækjum, þannig að þetta verður alltaf áskorun. Þá sagði Páll Gunnar það enga spurningu að við svona aðstæður væri samráð milli fyrirtækja miklu auðveldara en á stærri mörkuðum. „Þess vegna hafa fyrir dómsstólum komið fram álitsgerðir matsmanna um að samráð sé sérlega skaðlegt.“ Gagnrýni einhliða á Samkeppniseftirlitið Samráð á einu sviði hefur mikil smitáhrif og mikil áhrif á mörgum sviðum. Páll var inntur eftir gagnrýni sem heyrst hefur um að Samkeppniseftirlitið sé ljár í þúfu og þvælist fyrir. „Gagnrýni á Samkeppniseftirlitið endurspeglar að hagsmunirnir eru miklir. Og auðvitað eru hér fyrirtæki líka, og ef maður hugsar frá þeirra sjónarhóli þá er oft erfitt að ná fram stærðarhagkvæmni í litlu samfélagi. Stóru fyrirtækin eru oft að pressa á Samkeppniseftirlitið, að leyfa samruna og svo framvegis, og út úr því kemur þessi umræða. En þetta er bara önnur hliðin á peningum.“ Páll Gunnar segir að minna heyrist í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem eru að reyna að komast inn á markaðinn; að það þurfi að efla samkeppniseftirlit. Hann segir stofnunina undirmannaða. Þau séu nú 25, aðeins fleiri núna tímabundið. „Það er auðvitað alltof lítið. Við þyrftum að vera að lágmarki 40 til 50 til að geta sinnt okkar lögbundna hlutverki almennilega.“ Páll Gunnar fór yfir stöðuna og nefndi meðal annars að fyrirtæki sem vilja ná fram samruna, þau vilja minna samkeppniseftirlit. „Þið sjáið það ef þið farið inn á samráðsgáttina, hverjir senda inn umsóknir. Þar er aflið,“ sagði Páll og var þá að tala um Samtök atvinnulífsins meðal annars.
Samkeppnismál Atvinnurekendur Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira