Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Samúel Karl Ólason skrifar 21. júlí 2026 08:32 Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical. Vísir/Vilhelm Embla Medical, móðurfélag Össurar, hagnaðist um fjóra milljarða króna á öðrum fjórðungi ársins. Jókst hann um 39 prósent, borið saman við hagnað á sama ársfjórðungi í fyrra. Forstjóri fyrirtækisins segir vöxtinn fyrst og fremst drifinn af kröftugum innri vexti í stoðtækjum og góðum árangri nýrra vara.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársfjórðungsuppgjöri Emblu Medical. Þar segir að sala á öðrum ársfjórðungi 2026 hafi numið 32 milljörðum króna, sem samsvari ellefu prósenta heildarvexti og sex prósenta innri vexti. Innri vöxtur í sölu stöðtækja nam tólf prósentum en vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var eitt prósent. Þá drógust tekjur af þjónustu við skjólstæðinga saman um tvö prósent. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var sjö milljarðar króna. Það jafngildir 22 prósenta EBITDA-framlegð, samanborið við 21 prósent á sama tímabili í fyrra. Eins og áður segir var hagnaðurinn fjórir milljarðar, sem samsvarar ellefu prósentum af veltu. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar hér á vef Emblu Medical. Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Mediacl, segir að sala á ársfjórðungnum hafi verið sterk. „Vöxturinn var fyrst og fremst drifinn áfram af kröftugum innri vexti í stoðtækjum, áframhaldandi góðu gengi í EMEA [Evrópa, Mið-Austurlönd og Afríka] og APAC [Asía og Kyrrahafið] og góðum árangri nýrra vara. Vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var hóflegur, en tekjur af þjónustu við skjólstæðinga lækkuðu á fjórðungnum. EBITDA-framlegð var sterk á fjórðungnum, 22%, sem er hækkun um eitt prósentustig frá öðrum ársfjórðungi 2025. Hagnaður félagsins var einnig mjög góður og jókst um 39% á fjórðungnum. Með hliðsjón af afkomu fyrri árshelmings og væntingum um sterkari vöxt á seinni hluta ársins höfum við þrengt fjárhagsáætlun ársins fyrir innri vöxt í 5–7%, en áætlun um EBITDA-framlegð helst óbreytt í 20–22%.“
Embla Medical Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira