„Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. júlí 2026 00:22 Gísli Már Gíslason er prófessor emeritus í vatnalíffræði við Háskóla Íslands. Samsett Líffræðingur segir Ísland enn frekar fátækt af stunguskordýrum þó nýjar tegundir skordýra séu stöðugt að nema hér land. Unnið er að því að útýma annarri tveggja tegunda moskítóflugu sem fannst hér á landi í fyrra en enn er óljóst hvort það muni ganga upp enda sé lítið vitað um lífsferil flugunnar hér á landi.
Flestum er það líklega í fersku minni þegar moskítóflugur tóku að finnast hér á landi í fyrra. Skordýraáhugamaður í Kjós fékk bæði karl- og kvenflugu einnar tegundar flugunnar í gildru og grannt hefur verið fylgst með þróuninni síðan. Pör annarrar tegundarinnar fundust í Kjós og Mógilsá síðasta haust en voru þó ekki mörg. „Ég held það hafi verið sjö eða átta eintök sem fundust, sitt hvort kynið. Tvö eintök í Mógilsá og ég held það hafi verið fimm eða sex í Kjós. Það hefur ekki fundist aftur.“ Hin tveggja tegundanna er á lífi í hesthúsi á Suðurlandi og unnið sé að því að útrýma henni, segir Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í vatnalíffræði við Háskóla Íslands, sem var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Hann segist „ekkert alltof bjartsýnn“ um að það takist. Þær flugur sem enn eru á lífi eru staðbundnar á Suðurlandi að sögn Gísla, en Náttúrufræðistofnun Íslands fylgist grannt með málunum. Gísli segir að ef meðalhiti hér á landi væri svipaður nágrannalöndum okkar í Suður-Skandinavíu, Norður-Evrópu og Bretlandseyjum hefðu á fyrstu afkomendur þeirra flugna sem hér fundust í fyrra sést um síðustu mánaðamót. „En það getur verið að þetta taki lengri tíma, bara við höfum ekki þessa þekkingu,“ segir Gísli, þar sem lítið er vitað um lífferil flugnanna í loftslagi eins og því hérlendis. Tvær tegundir moskítóflugna fundist hérlendis Tvær tegundir moskítóflugna sem hér námu land síðasta haust eru skyldar en ekki af sömu ættinni. Önnur heitir Culiseta annulata og er algengasta moskítóflugutegundin um alla Evrópu, „frá nyrstu héruðum Noregs suður til syðstu héraða Afríku.“ Sú tegund bíti spendýr og menn og er röndótt með hvítar rendur í afturbolnum. Hin tegundin sé næstalgengust og lifi heldur í haughúsum. Hún sé kölluð „London Underground Mosquito“ þar sem hún lifir einnig í neðanjarðarlestarkerfi Lundúnaborgar en heiti formlega Culex pipens. Moskítóflugur séu allt að sjö sinnum stærri en lúsmýið sem landsmenn eflaust kannast vel við. Moskítóflugur séu sirka sentimetri á lengd en til samanburðar séu hrossaflugur tvöfalt til þrefalt stærri. Aðeins hafi ein tegund lúsmýs verið greind hér á landi. Gísli segir lúsmý og moskító vera með svipað byggingarlag en munurinn á þeim sé fyrst og fremst fólginn í „þessum feiknarlega stærðarmun.“ Einnig sé munur á biti flugnanna en bitmý sé með ákveðin „skæri“ til þess að drekka blóð en moskító með „rana“ til þess að finna háræðar og sjúga þannig blóð. „Báðar þessar flugur setja í sárið ensím sem kemur í veg fyrir að blóðið storkni og það er viðbragð við þessu ensími sem veldur kláðanum og bólgunum.“ Óljóst hvernig flugurnar komu til landsins „Það eru um það bil tíu prósent af skordýrum í Skandinavíu og Bretlandseyjum sem finnast á Íslandi, þannig að þetta landnám er enn í gangi og langflestar berast með vindum. En síðan núna með auknum ferðamannastraumi og auknum skipaflutningum og flugvélum til landsins þá berast þær líka með þessum flutningatækjum og það er ekki hægt að útiloka að þetta finnist fyrst við Hvalfjörðinn vegna þess að þar er ein stærsta útskipunarhöfn landsins og innskipunarhöfn. Þetta gæti verið tengt gámaflutningum,“ segir Gísli. En Gísli, áttu von á einhverju fleiru? Er eitthvað meira sem við megum eiga von á að nemi hérna land? Hér séu skordýr stöðugt að nema land en á undanförnum 30-35 árum hafi um fimm hundruð tegundir skordýra komið til landsins. Aðspurður hvort hann óttist að kakkalakkar komi til landsins segir hann þá vera löngu komna. „Þeir hafa verið hérna landlægir frá því á 20. öldinni.“ Landsmönnum finnist verst að fá þessi „stunguskordýr“ til landsins. „Það gætu auðvitað komið fleiri moskítóflugur, það eru fjörutíu tegundir af moskítóflugum í Skandinavíu og á Bretlandseyjum. Við erum bara komin með tvær. Það eru tvær lúsmýstegundir í Færeyjum og það eru tugir lúsmýstegunda sem bíta fólk á Skandinavíu. Þannig við erum tiltölulega fátæk af þessu ennþá.“
Skordýr Moskítóflugur Reykjavík síðdegis Dýr Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira