Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Valur Páll Eiríksson skrifar 21. júlí 2026 09:31 Gyrðir Hrafn Guðbrandsson sinnir viðskiptum samhliða boltanum. Vísir Gyrðir Hrafn Guðbrandsson átti draumabyrjun fyrir Þór á Akureyri er liðið varð það fyrsta í sumar til að vinna Íslandsmeistara Víkings. Hann hafði varla æft með liðinu þegar komið var í leikinn.
Gyrðir kom á láni frá KR til Þórs í vikunni og var varla stiginn út úr flugvélinni þegar komið var að æfingu og leik daginn eftir. „Það var eiginlega hálf æfing. Þetta gerðist allt mjög hratt, við kýldum á þetta og þeir keyptu fyrir mig flug sem var reyndar frestað tvisvar svo þeir þurftu að seinka æfingunni. En þetta var í raun hálf æfing og svo leikur,“ segir Gyrðir í Sportpakkanum á Sýn. Þór hafði ekki unnið leik frá því í apríl og varð fyrst liða til að vinna Íslandsmeistara Víkings. Gyrðir var hetjan og skoraði sigurmarkið. Þetta hefði vart getað byrjað betur? „Nei, alls ekki. Auðvitað unnum við Víkingana sem hafa varla tapað leik í ár. Þetta gat ekki byrjað betur. Við spiluðum bara helvíti vel, liðið var mjög flott og ég var ánægður með liðið og stuðningsmennina. Þetta var gríðarlega skemmtilegt, það var bara virkilega gaman að koma norður og taka þrjú stig fyrir klúbbinn,“ segir Gyrðir. Fer í útrás með fyrirtækið norður Misjafnt er hvað leikmenn hér heima taka sér fyrir hendur samhliða boltanum. Líklega eru fáir í því að selja klósettpappír en Gyrðir rekur fyrirtækið Rúllupp sem sendir klósettpappír heim að dyrum. Gyrðir sendir klósettpappír heim að dyrum.Aðsend En hvernig kom það til að hann færi í þann bransa? „Ég er á stóra fjölskyldu og við vorum alltaf að kaupa sömu vöruna aftur og aftur í búðinni, það er að segja klósettpappír. Ég fór aðeins að skoða þetta og langaði að bjóða upp á klósettpappírinn í áskriftarleið heim til þín. Gæðamikinn og góðan klósettpappír,“ „Þannig varð það til og nú ætla ég að stækka kvíarnar og fara með þetta til Akureyrar og leyfa fólkinu á Akureyri að njóta Rúllupp,“ Þannig að þú ert farinn norður að skeina Akureyringum? „Nákvæmlega,“ segir Gyrðir og hlær. „Nei, nei. En þetta mun stækka til Akureyringar sem geta fengið að njóta.“ Rúllupp, best á bossann? „Nákvæmlega, það er rétt,“ segir Gyrðir og hlær. Lengri útgáfu af viðtali við Gyrði má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Gyrðir ræðir skiptin norður
Þór Akureyri Besta deild karla KR Íslenski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira