Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júlí 2026 11:55 Sýningin sem Elli og dóttir hans Ignacia er fyyrsta einkasýning listamannsins hér á landi í fjögur ár. Instagram/Elliegils Listamaðurinn Elli Egilsson Fox opnar í dag, föstudaginn 17. júlí, einkasýningu ásamt dóttur sinni Ignaciu, sem er fjögurra ára gömul, í gallerí Herma á Hverfisgötu. Sýning þeirra feðginanna heitir því viðeigandi nafni Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
Sýningin verður opnuð klukkan 17:00 í dag en í tilefni af opnuninni mættu þau Elli og Ignacia í viðtal á Bylgjunni og þar sagði Elli frá því að þau hefðu unnið að verkum saman í gegnum tíðina og að Ignacia hefði sýnt af sér mikla listahæfileika alveg um leið. Lofaði góðu Þau hafa síðastliðin sjö ár búið í Los Angeles en í Las Vegas hafa þau feðginin varið mörgum stundum saman á vinnustofu Ella, aðallega til þess að mála þó að þau dansi stundum þar við góða tónlist. Ignacia valdi meðal annars skærbláan lit og grænan en Elli segir sýninguna vera tvískipta; annar hluti hennar sé með vetrarþema og annar með haustþema.Instagram/Elliegils „Hún byrjaði að mála í fyrra. Þá kom eitthvað svona upp hjá henni og ég gaf henni alvöru striga, ekkert svona blað og penna og eitthvað sullerí,“ segir Elli og bætir við að hann hafi séð að „hún var með svona takta og var rosalega einbeitt.“ Þá bauð Elli henni að velja sér fjóra liti fyrir hvert verk en hann mótaði svo fjallatoppa með límbandi á striga fyrir hana til að æfa sig í fyrstu. Hún málaði svo tvö verk. „Svo lét hún bara vaða og bætti við lögum eins og hún hefur augljóslega séð pabba sinn gera,“ segir Elli en hann valdi svo litina fyrir verkin sín út frá þeim átta sem Ignacia valdi. Elli er helst þekktur fyrir landslagsmyndir og málar iðulega íslenska fjallatinda eftir minni en Ignacia hefur undanfarið spreytt sig á því að mála verk þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. „Hún er að teikna fjölskylduna mikið, ég er með mikið skegg og mikið hár og alltaf gleraugun. Svo teiknar hún afa sinn og ömmu í sveitinni og allt þetta,“ segir Elli frá. Fer heim og leggur sig Á sýningunni verða átta verk eftir Ignaciu til sölu en tvö þeirra eru þegar seld, á fimmtíu þúsund krónur hvert. Elli segir hana löngu vera búna að taka yfir vinnustofuna hans og hann hafi ekki fengið neinu að ráða um það. „Hún alveg elskar þetta og er komin með sér vinnugalla. Vinnustofan heitir No days off og við reynum að mæta alla daga,“ segir Elli en hún fer flesta daga heim í lúr um hádegisbil og mætir svo aftur að mála meira. Elli segist brosa út að eyrum hvern einasta dag en hann ólst sjálfur upp að miklu leyti á vinnustofu föður síns, Egils Eðvarssonar, og hefur meðal annars haldið með honum sýninguna Sammála í Gallery Port árið 2023. Fyrsta sýning þeirra feðga var haldin þegar Elli var ellefu ára, árið 1991, en þá seldi hann sitt fyrsta verk fyrir hvorki meira né minna en fimm þúsund krónur. Ignacia, sem hefur líkt og fyrr segir selt tvö verk, hefur ekki enn ákveðið hvað hana langar að kaupa sér fyrir peninginn. Rúm með rennibraut, nýtt hjól eða nýir penslar koma til greina. Fyrsta sýningin á landinu í fjögur ár Þau Elli og leikkonan María Birta Bjarnadóttir Fox hafa búið með börnum sínum úti í Bandaríkjunum síðustu árin en Elli segir þau sjá fyrir sér að vera meira á Íslandi næstu misserin. Elli segir Ignaciu ráða ríkjum á vinnustofunni No days off í Las Vegas.Instagram/Elliegils „Við sjáum bara að börnin okkar elska að vera hérna. Þau bara fara upp í sveit til ömmu og afa og eru þar í pollagallanum að leika sér í skóginum,“ segir Elli en hann hefur ekki sýnt í rúm fjögur ár á Íslandi. Stærsta verkið á sýningunni, sem eru ríflega tuttugu talsins, Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, er ríflega þrír metrar sinnum tveir metrar. Elli hefur unnið að verkinu í tvö ár og því er eftirvæntingin mikil. Sýningin stendur yfir til 13. ágúst en þau feðginin verða viðstödd opnunina til klukkan átta í kvöld.
Sýningar á Íslandi Bandaríkin Reykjavík Börn og uppeldi Bítið Tengdar fréttir Elli hannaði jakka á Pharrell Pharrell klæðist flottum jakka eftir Ella á tónleikaferðalaginu Dear Girl Tour. 25. september 2014 17:43 Elli málar landslag verndaður af glæpagengjum Myndlistarmaðurinn Elli Egilsson býr í Los Angeles þar sem hann málar íslenskt landslag í einu skuggalegasta hverfi borgarinnar. Hann er í stuttu stoppi í örygginu á Íslandi og sýnir verk sem hann málaði utan þægindarammans. 19. júlí 2019 06:00 Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Myndlistamaðurinn Elli Egilsson Fox hélt fyrst að um grín væri að ræða þegar tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör gaf út lag sem heitir eftir honum. Hann er búsettur í Bandaríkjunum og málar íslenskt landslag eftir minni. 25. september 2025 20:02 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira
Elli hannaði jakka á Pharrell Pharrell klæðist flottum jakka eftir Ella á tónleikaferðalaginu Dear Girl Tour. 25. september 2014 17:43
Elli málar landslag verndaður af glæpagengjum Myndlistarmaðurinn Elli Egilsson býr í Los Angeles þar sem hann málar íslenskt landslag í einu skuggalegasta hverfi borgarinnar. Hann er í stuttu stoppi í örygginu á Íslandi og sýnir verk sem hann málaði utan þægindarammans. 19. júlí 2019 06:00
Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Myndlistamaðurinn Elli Egilsson Fox hélt fyrst að um grín væri að ræða þegar tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör gaf út lag sem heitir eftir honum. Hann er búsettur í Bandaríkjunum og málar íslenskt landslag eftir minni. 25. september 2025 20:02