Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Freyja Þórisdóttir skrifar 16. júlí 2026 18:40 Baráttan við gróðurelda í Norður-Ameríku hefur staðið yfir í rúma viku en eldunum fjölgar enn. AP Ríflega átta hundruð svæði hafa orðið gróðureldum að bráð víðs vegar um Kanada og viðvaranir hafa verið gefnar út í mörgum fylkjum Bandaríkjanna vegna versnandi loftgæða. Fólki er ráðlagt að halda sig innandyra þar sem loftgæðin eru hvað verst og hafa grímur verið gerðar aðgengilegar í sumum borgum sem og kælisvæði.
Hátt í átta hundruð og sextíu gróðureldar loga nú víðs vegar um Kanada og viðvaranir vegna loftgæða ná nú suður til margra fylkja Bandaríkjanna. Meðal annars eru loftgæði í bæði Michigan og Minnesota hreinlega talin hættuleg og er fólki á svæðinu ráðlagt að halda sig innandyra er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Þar er einnig greint frá því að svæði sem hafa orðið eldunum að bráð verði sífellt fleiri og að þrjátíu nýir eldar hafi kviknað það sem af er liðnum degi, fimmtudaginn 16. júlí. Langflestir gróðureldarnir loga stjórnlaust. Rigningin dugi ekki til Þykkur reykmökkur og slæm loftgæði yfir borginni Toronto stafa af klasa af eldum sem herja á norðvestursvæði Ontario en reykur hefur einnig borist yfir vötnin á svæðinu og er loftið sagt móðukennt í New York-borg. Svokölluðum KN95-grímum hefur verið dreift um borgirnar Michigan og New-York en loftgæði þar eru talin mjög óholl fólki.AP Í gær, miðvikudaginn 15. júlí, voru neyðaráætlanir í New York vegna hita framlengdar og neyðarreglur vegna loftgæða virkjaðar en hundruðum kælistöðva hefur verið komið fyrir um borgina og hafa svokallaðar KN95-grímur verið gerðar aðgengilegar um alla borg. Í Ontario verða nokkuð víðtæk þrumuveður næstu daga, en í frétt BBC segir að litlar líkur séu á því að rigningin sem því fylgi muni vera næg til að gera mjög mikið gagn í baráttunni við gróðureldana. Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar í kvöld, fimmtudaginn 16. júlí. Norðvestanvindar munu halda áfram að blása reyknum yfir norðurhluta Bandaríkjanna það sem eftir er vikunnar og fram yfir helgi, sem ku vekja áhyggjur þeirra sem standa að heimsmeistaramótinu í fótbolta en úrslitaleikur mótsins á að fara fram í borginni New Jersey á sunnudaginn. Loftgæði í miðvesturborginni Detroit eru nú þau verstu í heimi, er í frétt BBC haft eftir svissneskum loftgæðamæli, en þar á eftir koma Minneapolis, Chicago og Toronto.
Gróðureldar Kanada Bandaríkin Loftgæði Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira