Innlent

Um­ferð beint annað vegna á­reksturs undir Ingólfs­fjalli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eins og sjá má er enginn bíl á Suðurlandsvegi á leið í austurátt en greina má bíla aka Ölfusveg sunnan Suðurlandsvegar.
Eins og sjá má er enginn bíl á Suðurlandsvegi á leið í austurátt en greina má bíla aka Ölfusveg sunnan Suðurlandsvegar. Umferðin.is

Umferð um Suðurlandsveg vestan við Selfoss í austurátt hefur verið lokað vegna áreksturs sem varð á veginum síðdegis. Umferð er beint um Ölfusveg sunnan við hringveginn.

Greint er frá lokun vegarins í austurátt á heimasíðu Vegagerðarinnar Umferðin.is. Tilkynningin birtist á vef Vegagerðarinnar klukkan 16:15 en óhappið virðist hafa orðið um hálftíma fyrr miðað við umræðu í Facebook-hópi um færð á svæðinu.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×