Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júlí 2026 20:47 Ferð Benedikts Gunnars Óskarssonar út á golfvöll reyndist örlagarík. vísir/ívar Handboltamaðurinn Benedikt Gunnar Óskarsson óttaðist hið versta þegar hann missti máttinn í hægri hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið í sumar. Hann er óðum að endurheimta hreyfigetu í hendinni, er í endurhæfingu og kveðst bjartsýnn á að geta snúið aftur á völlinn á næstunni.
Eftir að hafa orðið Noregsmeistari með Kolstad í vor samdi Benedikt við danska liðið Team Tvis Holstebro sem Arnór Atlason þjálfar. Meðan hann var hér á landi í sumarfríi skellti Benedikt sér í golf. Ferðin út á golfvöll dró dilk á eftir sér. „Já, ég var í golfi með vinum mínum og þegar ég á eina holu eftir fæ ég golfkúlu í hausinn, hérna ofan á hausinn og missi strax mátt í hægri hendinni. Það var helvíti óþægilegt,“ sagði Benedikt í samtali við íþróttadeild. Ískur úti um allt Benedikt segist strax hafa haft áhyggjur af hendinni þar sem hann lá á golfvellinum. „Það er bara ískur úti um allt þegar maður er nýbúinn að fá golfbolta í hausinn. Þegar maður liggur þarna og vonast maður til að þetta lagist. Svo var maður auðvitað hræddur um hendina. Það var meira það sem ég hugsaði,“ sagði Benedikt sem höfuðkúpubrotnaði þegar hann fékk golfkúluna í höfuðið. „Það var bara það fyrsta sem ég hugsaði eiginlega um, að ég missti allan mátt í allri hendinni og fann ekki fyrir henni, þannig að það var mjög óþægilegt.“ Var í fjóra daga á spítala Benedikt segir að um algjöra ólukku hafi verið að ræða. „Þetta er bara algjört óhappadæmi. Maður hefur ekki heyrt mikið af þessu auðvitað. Hún var bara tuttugu metra frá mér eða eitthvað og er bara að „drive-a“ sjálf á sinni holu og ég bara fæ þetta beint í hausinn á meðan ég er sjálfur að fara að slá mitt högg. Ég fór bara með sjúkrabíl upp á spítala og er þar í fjóra daga. Svo fór ég heim,“ sagði Benedikt. Benedikt Gunnar Óskarsson varð tvívegis norskur meistari með Kolstad.kolstad Hann náði stórum áfanga í þessari viku þegar hann gat rétt úr öllum fingrum hægri handar. „Ég var að geta rétt úr puttunum í fyrsta skipti fyrir svona tveimur dögum. Það var mikill sigur fannst mér þá. Svo er ég bara þrisvar í viku í endurhæfingu á Grensás sem hjálpar mér mikið.“ Fór á vonda staði í hausnum Hann segir að hugurinn hafi reikað á óþægilega staði eftir óhappið á golfvellinum. „Ég næ ekki mikið að hugsa hana þegar ég ligg þarna en þegar ég er að tala við lækna og sérfræðingana eftir þetta og þeir geta ekki lofað manni að hendin komi hundrað prósent til baka fer maður auðvitað á vonda staði í hausnum. En svo þarf maður bara að vera bjartsýnn,“ sagði Benedikt. Benedikt með eldri bróður sínum, Arnóri Snæ, á landsliðsæfingu.Instagram/@hsi_iceland Hann kveðst vongóður að ná fyrri styrk og geta byrjað að spila handbolta á nýjan leik. „Jájá, ég er það alveg. Mér líður alltaf betur með hverjum deginum og hendin kemur hægt og rólega. Ég er mjög bjartsýnn,“ sagði Benedikt. Pabbi hringdi í Arnór Sem fyrr sagði var Benedikt nýbúinn að semja við Holstebro þegar hann lenti í óhappinu á golfvellinum. Hann segir að Arnór og aðrir hjá danska félaginu hafi sýnt honum mikinn skilning. „Símtalið var tekið fyrir mig fyrst þegar ég lá á spítalanum. Þá hringdi pabbi [Óskar Bjarni Óskarsson] í hann [Arnór] fyrir mig. Þeir segja bara að þetta sé auðvitað bara óhappadæmi og maður geti ekkert stjórnað þessu. Þeir sögðu bara að þeir muni hjálpa mér í þessu eins mikið og þeir gætu og vildu að ég myndi vera hérna heima þangað til ég myndi ná einhverri bætingu,“ sagði Benedikt. Benedikt afrekaði það að skora sautján mörk í bikarúrslitaleik Vals og ÍBV 2024.vísir/hulda margrét Hann hlakkar til að spila með Holstebro þar sem fyrir er, auk Arnórs, örvhenta skyttan Jóhannes Berg Andrason. „Ég er ennþá mjög spenntur fyrir því og held að þetta sé frábært skref fyrir mig,“ sagði Benedikt. Hann segir að óhappið á golfvellinum sýni hversu stutt er oft á milli í lífinu. „Jú, þetta lætur mann vera, ég veit það ekki, meira einhvern veginn þakklátan þegar maður getur gert allt. Ég held að þetta muni bara hjálpa manni þegar þetta lagast allt og maður er líklega bara þakklátur fyrir allt sem maður getur gert,“ sagði Benedikt að lokum.
Danski handboltinn Golf Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira