Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 15. júlí 2026 07:50 Gagnrýnendur segja auðvelt að komast hjá hinu boðaða banni. Eldri unglingar í Bretlandi þurfa innan tíðar, ef boðuð löggjöf um samfélagsmiðla nær fram að ganga, að sætta sig við að komast ekki á samfélagsmiðla sína eftir miðnættið.
Til stendur að banna öllum börnum undir sextán ára aldri að vera á samfélagsmiðlum en einnig er lagt til að eldri unglingar, sextán og sautján ára, sæti ákveðnum takmörkunum. Það myndi þýða að öpp á borð við Facebook, TikTok og Instagram yrðu lokuð þessum aldurshópi frá miðnætti og fram til klukkan sex á morgnana. Gagnrýnendur tillögunnar eru þó á því margir hverjir að hún gangi ekki nægilega langt og að lítið mál sé fyrir krakkana að breyta stillingum í símum sínum til þess að komast hjá banninu. Í nýrri skýrslu sem kom út í gær er vitnað í rannsókn sem yfirvöld létu gera þar sem hópi unglinga var bannað að vera á slíkum miðlum frá klukkan níu á kvöldin og svefnmynstur þeirra borið saman við annan hóp sem sætti engum slíkum takmörkunum. Í skýrslunni er því haldið fram að markverðar breytingar til góðs hafi verið á svefni þeirra sem sættu takmörkunum.
Samfélagsmiðlar Bretland Tengdar fréttir Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna. 28. júní 2026 08:12 Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst Bretar ætla að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla. Sviðstjóri Netvís vill að sambærilegar reglur verði settar hér á landi sem fyrst. 15. júní 2026 13:20 Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að Meta, eigandi Facebook og Instagram, hafi brotið gegn lögum ESB um stafræna þjónustu [e. Digital Services Act, DSA] með því að tryggja ekki betur að börn undir þrettán ára aldri noti ekki Facebook og Instagram. 29. apríl 2026 10:47 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Sjá meira
Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna. 28. júní 2026 08:12
Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst Bretar ætla að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla. Sviðstjóri Netvís vill að sambærilegar reglur verði settar hér á landi sem fyrst. 15. júní 2026 13:20
Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að Meta, eigandi Facebook og Instagram, hafi brotið gegn lögum ESB um stafræna þjónustu [e. Digital Services Act, DSA] með því að tryggja ekki betur að börn undir þrettán ára aldri noti ekki Facebook og Instagram. 29. apríl 2026 10:47