„Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. júlí 2026 22:02 Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, sá sínar stelpur tapa þremur leikjum í röð. Vísir/Diego „Vanlíðan og vonbrigði,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson eftir 0-1 tap Þróttar gegn Fram í Bestu deild kvenna í kvöld.
Eftir stórt tap í síðustu umferð mátti Þróttur þola tap gegn botnliði Fram á heimavelli. Jóhann Kristinn var því eðlilega langt niðri eftir leik. „Ég er rosalega sár og svekktur eins og allar stelpurnar og öll sem eru í kringum þetta hjá Þrótti. Þetta er ekki það sem við ætluðum að bjóða upp á í kvöld. Okkar fólk sem kom hingað frekar en að horfa á undanúrslitin á HM átti þetta ekki skilið og við áttum það að okkar mati ekki heldur. Við ætluðum að gera betur og sýna þeim góða frammistöðu, við ætluðum að ná í þrjú stig. Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega. Manni líður eins og maður hafi brugðist og við höfum auðvitað gert það á ákveðinn hátt og það er ekki góð tilfinning.“ Aðspurður hvað hefði farið úrskeiðis í kvöld hafði Jóhann Kristinn eftirfarandi að segja: „Þetta er svolítið svona leiðindauppskrift. Við náum ekki að taka nægilega góðar ákvarðanir eða búa nægilega mikið til á síðasta þriðjungi. Svo þegar við fáum færi þá náum við ekki að skora. Sóknarleikurinn er ekki nægilega góður, augljóslega því við skorum ekki mark í kvöld á okkar eigin heimavelli. Við höfum verið að reyna að vinna í þessu. Svo er það þannig að hætta sem við vissum að væri til staðar nýtir sér styrkleika framherja síns sem er góð með bakið í markið. Hún nær að snúa af sér gríðarlega sterkan varnarmann sem er hjá okkur. Við vissum af þessu en þær gerðu þetta frábærlega og börðust fyrir þessu. Framarar eiga heiður skilinn fyrir hvernig þær hafa risið í sumar og þessir tveir sigrar í röð hjá þeim eru til eftirbreytni. En við þurfum að hugsa okkar gang. Ég er ekki að ná að fá stelpurnar mínar til að sjá og trúa því hvað þær eru góðar því þær eru það. Þær eru ógeðslega góðar en ég er ekki að fá þær til að trúa því við erum að spila verr en við eigum að gera á venjulegum degi.“ Eftir leik kvöldsins er Þróttur með 13 stig í 5. sæti en Fram í 9. sæti með 10 stig.
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Fram Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira