„Drullið ykkur í burtu“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 14. júlí 2026 16:03 Leikarinn Hudson Williams sat á fremsta bekk á tískusýningu Balenciaga í París á dögunum. Hann var svo eltur á röndum af mönnum sem selja eiginhandaráritanir og var nóg boðið. Swan Gallet/WWD via Getty Images Kanadíska stórstjarnan Hudson Williams var að þrotum kominn í París á dögunum eftir að hafa verið eltur á röndum af mönnum sem vinna við það að selja eiginhandaráritanir. Einn mannanna tók Williams upp á myndband sem hefur farið sem eldur um sinu á Internetinu.
Hudson Williams er fæddur árið 2001 og skaust upp á stjörnuhimininn með hlutverki sínu sem hokkíleikmaðurinn Shane Hollander í þáttunum Heated Rivalry. Líf hans gjörbreyttist á stuttum tíma í kjölfar frægðarinnar og hefur hann verið tíður gestur á ýmsum eftirsóknarverðum viðburðum á borð við tískuvikur og unnið mikið með tískuhúsinu Balenciaga. Hann var einmitt staddur í París á hátískuvikunni þar um helgina þegar hann og kærasta hans Katlyn Larson voru elt um alla borg og að hóteli sínu af umræddum mönnum. Þegar þeir báðu hann að árita fyrir sig myndir var Williams nóg boðið. „Strákar, þið eltuð mig alla leið að hótelinu mínu. Þið megið ekki gera þetta. Þetta er ótrúlega fokking skrýtið, þið megið ekki fokking gera þetta,“ sagði Williams bugaður og reif myndirnar af mönnunum og reyndi árangurslaust að kveikja í þeim. View this post on Instagram A post shared by curators of pop culture (@deuxmoi) „Þið eruð ekkert aðdáendur mínir. Þið eruð að vera mjög óþægilegir og bara að elta mig. Ég ætla að brenna þetta, takk fyrir. Drullið ykkur í burtu, plís. Þið eruð geðveikir. Ég vil horfa á ykkur fara. Hoppið á litlu hjólin ykkar,“ hélt Williams áfram áður en hann rauk í burtu með Larson og tveimur aðstoðarmönnum. Þegar mennirnir héldu áfram að elta þau sneri Larson hér við, rétti þeim myndirnar og bað þá hljóðlátlega að koma sér burt.
Hollywood Tíska og hönnun Frakkland Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira