Hættir vegna höfuðmeiðsla og áhrifa þeirra á andlega heilsu hans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 19:26 Axel Snær Orongan endaði ferilinn í vor með því að hjálpa Skautafélagi Reykjavíkur að vinna sinn áttunda Íslandsmeistaratitil og jafnframt þann þriðja á síðustu fjórum árum. @axelorongan Axel Snær Orongan, íslenskur landsliðsmaður í íshokkí og lykilmaður í liði Íslandsmeistara Skautafélags Reykjavíkur, hefur tekið þá stóru ákvörðun að setja keppnisskautana sína upp á hillu.
Axel Snær snéri aftur inn á svellið í ársbyrjun og á miðju tímabili eftir langa fjarveru vegna meiðsla en hann tilkynnti í kvöld á samfélagsmiðlum sínum að hann hefði nú spilað sinn síðasta leik. Axel er fæddur í mars árið 2001 og er enn bara 25 ára gamall en verður engu að síður að segja þetta gott í íshokkínu. „Eftir miklar hugleiðingar hef ég tekið þá erfiðu ákvörðun að leggja skautana á hilluna. Vegna höfuðmeiðsla sem ég hef orðið fyrir og þeim áhrifum sem þau hafa haft á andlega heilsuna mína tel ég að þetta sé rétta ákvörðunin fyrir mig og framtíðina mína,“ skrifaði Axel Snær á samfélagsmiðla sína. Axel var með fimm mörk og fimm stoðsendingar í fjórum leikjum með Skautafélagi Reykjavíkur á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að vinna sinn áttunda Íslandsmeistaratitil og jafnframt þann þriðja á síðustu fjórum árum. „Þetta er ekki ákvörðun sem ég endilega vildi taka, en heilsan verður alltaf að vera í fyrsta sæti og þar af leiðandi er þetta erfið en samt rétt ákvörðun fyrir mig,“ skrifaði Axel. „Ég er búinn að ganga í gegnum alls konar síðastliðið ár varðandi andlega líðan og heilsu og veit að það hefði hjálpað mér mikið ef umræðan um andlega líðan hjá íþróttamönnum væri meiri,“ skrifaði Axel. „Mér finnst of lítið talað um þetta og þar að leiðandi vil ég líka taka það fram að það er ekkert að því að líða illa, það er alltaf hægt að vinna í þeim hlutum og hlutirnir verða alltaf betri á endanum. Það skiptir bara mestu máli að þora að segja frá því!,“ skrifaði Axel en það má sjá alla færslu hans hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Axel.O (@axelorongan)
Íshokkí Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira