„Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Sindri Sverrisson skrifar 12. júlí 2026 20:45 Fyrirliðinn Aron Sigurðarson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir KR. Vísir/Anton Brink Aron Sigurðarson skoraði tvö og lagði upp eitt þegar KR lagði ÍBV 5-2 í Bestu deild karla í fótbolta. Hans markmið er einfalt, vinna bæði gullskóinn sem og að slá markamet efstu deildar. „
ÍBV er gott lið. Búið að vera á góðri siglingu. Við skulduðum heilsteypta frammistöðu í 90 mínútur, vorum staðráðnir í að koma gíraðir inn í leikinn,“ sagði Aron við Sýn eftir leik. „Þó þeir komist yfir fannst mér þetta góð frammistaða nánast í 90 mínútur. Vorum að spila á móti hörkuliði, frammistaðan í síðustu tveimur leikjum hefur skilað lélegum úrslitum. Okkur fannst við skulda svolítið og gerðum það hérna í dag.“ Aron var spurður út í eigin frammistöðu og þá staðreynd að vera tekinn af velli þegar enn var nóg eftir af leiknum. „Að sjálfsögðu langar mig að vera lengur inn á, skora fleiri mörk og leggja upp fleiri mörk. Við erum með frábæran hóp, það eru mjög góðir menn á bekknum. Flott að sjá strákana koma inn á. Fannar (Heimisson) var að fá sinn fyrsta leik og spilaði ótrúlega vel. Galdur (Guðmundsson) kom inn, mjög góður, Sigurður Breki (Kárason). Þessir strákar eiga skilið að spila og það er ekki hægt að kvarta yfir því. Hvort sem það er ég eða einhver annar, það er hörð samkeppni hérna.“ „Ég er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið. Þess vegna er maður kannski extra súr að vera tekinn út af í dag en í mínum haus er ég með þetta bæði, búinn að vinna bæði gullskóinn og slá markametið,“ sagði Aron að endingu.
Besta deild karla KR Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira