FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli Sindri Sverrisson skrifar 11. júlí 2026 17:40 FH-ingar eiga titil að verja í bikarkeppninni en staðan er spennandi eftir fyrri daginn. FRÍ FH er í góðri stöðu eftir fyrri keppnisdag í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands en ÍR er þó ekki langt undan. ÍR er naumlega yfir í stigakeppni karla og fagnaði einnig sigri í bikarkeppni 15 ára og yngri. Keppt var í 18 greinum í bikarkeppni fullorðinna í dag, 9 greinum karla og 9 greinum kvenna, og hið sama verður gert á morgun áður en bikarmeistarar verða krýndir, á velli ÍR-inga í Breiðholti. Þökk sé góðum árangri FH-kvenna í dag þá er liðið með 6,5 stiga forystu í heildarstigakeppninni en hún getur verið fljót að fuðra upp á morgun. Sex lið eru í keppninni og því fást sex stig fyrir sigur í hverri grein, fimm stig fyrir 2. sæti og þannig koll af kolli. Staðan eftir fyrri dag í bikarkeppni FRÍ: Heildarkeppni: FH 85 ÍR 78,5 Fjölnir 64,5 Ármann 49 Breiðablik 42 ÍR B 21 Stigakeppni kvenna: FH 43 Fjölnir 36 ÍR 36 Ármann 19 Breiðablik 14 ÍR B 11 Stigakeppni karla: ÍR 42,5 FH 42 Ármann 30 Fjölnir 28,5 Breiðablik 28 ÍR B 10 Á meðal afreka einstaklinga má nefna að Christina Alba Marcus Hafliðadóttir vann 100 metra hlaup kvenna og sótti einnig fjögur stig í langstökki. Þá var María Rún Gunnlaugsdóttir afar öflug fyrir ÍR og náði samtals í 14 stig en hún vann 100 metra grindahlaupið, varð í 2. sæti í spjótkasti og í 4. sæti í stangarstökki. Öll úrslit úr mótinu má sjá með því að smella hér. Í bikarkeppni 15 ára og yngri fögnuðu ÍR-ingar öruggum sigri en liðið hlaut samtals 109 stig. Næst á eftir kom sameinað lið HHF-HSK/Selfoss-A sem hlaut 85 stig en baráttan um bronsverðlaunin var ógurlega spennandi. Breiðablik, FH og Ármann hlutu öll 76 stig en Breiðablik vann flestar greinar af þessum liðum og hlaut bronsverðlaunin. ÍR vann þrefalt í bikarkeppni 15 ára og yngri því liðið vann bæði pilta- og stúlknakeppnina. Öll úrslit frá mótinum má sjá með því að smella hér. Frjálsar íþróttir Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn Uppgjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Fótbolti Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Guðrún Karítas í úrslit og Elísabet nálægt því „Ég er bara ógeðslega sáttur með þetta“ Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Hilmar í úrslit í sleggjunni KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Højbjerg hafnaði Newcastle Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Íslenska liðið enn ósigrað Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Knattspyrnusambönd biðja Infantino að stíga til hliðar í opnu bréfi Einar bætti sig í hundrað metra bringusundi á EM Liverpool og Barcola náð samkomulagi Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fór á skeljarnar í sumarfríinu Sjá meira
Keppt var í 18 greinum í bikarkeppni fullorðinna í dag, 9 greinum karla og 9 greinum kvenna, og hið sama verður gert á morgun áður en bikarmeistarar verða krýndir, á velli ÍR-inga í Breiðholti. Þökk sé góðum árangri FH-kvenna í dag þá er liðið með 6,5 stiga forystu í heildarstigakeppninni en hún getur verið fljót að fuðra upp á morgun. Sex lið eru í keppninni og því fást sex stig fyrir sigur í hverri grein, fimm stig fyrir 2. sæti og þannig koll af kolli. Staðan eftir fyrri dag í bikarkeppni FRÍ: Heildarkeppni: FH 85 ÍR 78,5 Fjölnir 64,5 Ármann 49 Breiðablik 42 ÍR B 21 Stigakeppni kvenna: FH 43 Fjölnir 36 ÍR 36 Ármann 19 Breiðablik 14 ÍR B 11 Stigakeppni karla: ÍR 42,5 FH 42 Ármann 30 Fjölnir 28,5 Breiðablik 28 ÍR B 10 Á meðal afreka einstaklinga má nefna að Christina Alba Marcus Hafliðadóttir vann 100 metra hlaup kvenna og sótti einnig fjögur stig í langstökki. Þá var María Rún Gunnlaugsdóttir afar öflug fyrir ÍR og náði samtals í 14 stig en hún vann 100 metra grindahlaupið, varð í 2. sæti í spjótkasti og í 4. sæti í stangarstökki. Öll úrslit úr mótinu má sjá með því að smella hér. Í bikarkeppni 15 ára og yngri fögnuðu ÍR-ingar öruggum sigri en liðið hlaut samtals 109 stig. Næst á eftir kom sameinað lið HHF-HSK/Selfoss-A sem hlaut 85 stig en baráttan um bronsverðlaunin var ógurlega spennandi. Breiðablik, FH og Ármann hlutu öll 76 stig en Breiðablik vann flestar greinar af þessum liðum og hlaut bronsverðlaunin. ÍR vann þrefalt í bikarkeppni 15 ára og yngri því liðið vann bæði pilta- og stúlknakeppnina. Öll úrslit frá mótinum má sjá með því að smella hér.
Staðan eftir fyrri dag í bikarkeppni FRÍ: Heildarkeppni: FH 85 ÍR 78,5 Fjölnir 64,5 Ármann 49 Breiðablik 42 ÍR B 21 Stigakeppni kvenna: FH 43 Fjölnir 36 ÍR 36 Ármann 19 Breiðablik 14 ÍR B 11 Stigakeppni karla: ÍR 42,5 FH 42 Ármann 30 Fjölnir 28,5 Breiðablik 28 ÍR B 10
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Fótbolti „Mér líður frábærlega“ Enski boltinn Uppgjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Fótbolti Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Enski boltinn Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Guðrún Karítas í úrslit og Elísabet nálægt því „Ég er bara ógeðslega sáttur með þetta“ Strákarnir hans Sigga Ragga skóluðu Skála og eru áfram á toppnum Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Hilmar í úrslit í sleggjunni KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Højbjerg hafnaði Newcastle Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Íslenska liðið enn ósigrað Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Knattspyrnusambönd biðja Infantino að stíga til hliðar í opnu bréfi Einar bætti sig í hundrað metra bringusundi á EM Liverpool og Barcola náð samkomulagi Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fór á skeljarnar í sumarfríinu Sjá meira