Íslandsmet í hættu í Breiðholti um helgina Sindri Sverrisson skrifar 10. júlí 2026 16:02 HM-fararnir Júlía Kristín Jóhannesdóttir og Christina Alba Hafliðadóttir keppa í Breiðholti um helgina. Samsett/@ricewtfxc/FRÍ Íslandsmethafar og ólympíufarar eru í hópi fremsta frjálsíþróttafólks landsins sem keppir í bikarkeppni FRÍ um helgina, á ÍR-vellinum í Skógarseli.
Sex lið taka þátt í keppninni í ár sem að vanda virkar þannig að lið senda fulltrúa í hverja grein sem svo safna stigum fyrir sitt lið með árangri sínum. Í fyrra urðu FH-ingar bikarmeistarar í heildarstigakeppninni, sem og í stigakeppni kvenna, en það var sameinað lið Fjölnis og UMSS sem varð bikarmeistari karla. ÍR sendir tvö lið til keppni í ár en einnig keppa Ármann, Breiðablik, FH og Fjölnir. Keppni stendur yfir frá 13:30 til 16:30 á morgun, og frá 13 til 16 á sunnudaginn. Frjálsíþróttasambandið hefur tíundað það helsta sem gæti verið í vændum á mótinu og má sjá það hér að neðan. Laugardagurinn 11. júlí: – Bikarkeppnin hefst á stangarstökki kvenna 13:30. Þar á Hanna María Petersdóttir (Fjölni) besta árangurinn og hefur stokkið hæst allra í ár 3,30 m. – Í 1500 metra hlaupi kvenna má búast við spennandi keppni en Embla Margrét Hreimsdóttir (FH) hefur hlaupið hraðast keppanda en Helga Lilja Maack (ÍR) er einnig á mikilli siglingu þessa dagana. – Í langstökki karla á Þorleifur Einar Leifsson (Breiðablik) besta árangurinn í ár en Gylfi Ingvar Gylfason (FH) kemur þar skammt á eftir. – í kúluvarpi karla er það Sigursteinn Ásgeirsson (ÍR) sem er sigurstranglegastur en hann hefur kastað lengst í ár. En hinn bráðefnilegi Benedikt Gunnar Jónsson (ÍR B) er líklegur til afreka. – Þar næst er kringlukast kvenna þar sem landsliðskonan og Íslandsmethafinn Hera Christensen (FH) mætir til leiks og gerir atlögu að Íslandsmetinu. – Í 1500 metra hlaupi karla verður spennandi keppni um titilinn en Hilmar Ingi Bernharðsson (ÍR) á besta tíma þátttakenda í ár. Fjölnir Brynjarsson (FH) á þó betri persónulegan árangur og því verður væntanlega hart barist. – Það verður æsispennandi 100 metra hlaup kvenna þar sem Eir Chang Hlésdóttir (ÍR) og Christina Alba Marcus Hafliðadóttir (Fjölni) berjast um titilinn og Íslandsmetið gæti verið í hættu. – Í 100 metra hlaupi karla mætir Kristófer Þorgrímsson (FH) til leiks en hann á hraðasta tíma ársins 10,70 sek. – Í 100 metra grindahlaupi kvenna mætir Íslandsmethafinn Júlía Kristín Jóhannesdóttir (Breiðablik) til leiks en hún hefur verið á mikilli siglingu í ár. – Í 110 metra grindahlaupi karla er það Þorleifur Einar Leifsson (Breiðablik) sem á besta tíma keppanda í ár. – Birna Kristín Kristjánsdóttir (FH) er að snúa til baka eftir meiðsli og verður spennandi að sjá hvað hún nær að stökkva langt í langstökki kvenna. – Í kringlukasti karla er það Íslandsmethafinn Guðni Valur Guðnason (ÍR) sem hefur kastað lengst allra í ár, 62.48. – Í 400 metra hlaupi kvenna má búast við jafnri keppni á milli Ísoldar Sævarsdóttur (FH) og Ingibjargar Sigurðardóttur (ÍR). – Sömu sögu má segja um 400 metra hlaup karla þar sem sekúndubrot gætu skilið á milli keppanda. – Kjartan Óli Bjarnason (Fjölni) á besta tíma keppanda í ár en hann hljóp á 47,44 fyrr í sumar sem var jafnframt Íslandsmet u20. – Í hástökki karla má búast við spennandi keppni en Birnir Vagn Finnsson (FH) á besta persónulegan árangur keppanda. – Í spjótkasti kvenna er það Arndís Diljá Óskarsdóttir (FH) sem er líkleg að verja bikarmeistaratitilinn en hún á lengsta kast ársins. – Í 5000 metra hlaupi kvenna er það Íris Dóra Snorradóttir (FH) sem er líkleg að landa titlinum en hún á besta tíma þátttakenda í ár. Í 5000 metra hlaupi karla má búast við harðri keppni á milli Sindra Karls Sigurjónssonar (ÍR) og Stefáns Kára Smárasonar (FH) en þeir eiga 2. og 3. hraðasta tíma ársins í vegalengdinni. 13:30 Stangarstökk kvenna 14:00 1500 m kvenna 14:00 Langstökk karla 14:00 Kúluvarp karla 14:00 Kringlukast kvenna 14:15 1500 m karla 14:30 100 m kvenna 14:40 100 m karla 15:00 100 m grindahlaup kvenna 15:15 110 m grindahlaup karla 15:15 Langstökk kvenna 15:15 Kringlukast karla 15:30 400 m kvenna 15:30 Hástökk karla 15:40 400 m karla 15:55 5000 m kvenna 16:00 Kringlukast kvenna 16:15 5000 m karla Sunnudagurinn 12. júlí: – Seinni dagurinn hefst á 400 metra grindahlaupi kvenna en þar á Ísold Sævarsdóttir (FH) besta árangurinn. – Í stangarstökki karla er það Magnús Elías Harvard (Ármanni) sem á bestan árangur keppenda í ár 4,72 m en það er jafnframt Íslandsmet u20. – Í þrístökki kvenna mætir Íslandsmethafinn Irma Gunnarsdóttir (FH) til leiks. – Íslandsmethafinn og Ólympíufarinn Erna Sóley Gunnarsdóttir (ÍR) keppir í kúluvarpi kvenna. – Enn annar Íslandsmethafi mætir til leiks þegar Hilmar Örn Jónsson (FH) keppir í sleggjukasti karla. – Í 400 metra grindahlaupi karla er það Ívar Kristinn Jasonarson (ÍR) sem á besta tímann í ár en Pétur Óli Ágústsson (Fjölni) hefur einnig verið á góðri siglingu og bætt sig mikið. – Í 800 metra hlaupi kvenna er það Helga Lilja Maack (ÍR) sem á besta tíma keppanda í ár. – Leó Örn Þórarinsson (FH) á bestan árangur keppenda í 800 metra hlaupi karla. – Í 200 metra hlaupi kvenna er líklegust til sigurs Íslandsmethafinn Eir Chang Hlésdóttir (ÍR). – Í 200 metra hlaupi karla má búast við harðri keppni en Kristófer Þorgrímsson (FH) er með besta tíma þátttakenda. – Í sleggjukasti kvenna má búast við svakalegu einvígi en þær Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir (ÍR) og Elísbet Rut Rúnarsdóttir (ÍR B) mæta til leiks. Þær hafa skipst á að slá Íslandsmetið síðustu misseri og hver veit nema metið falli enn og aftur á heimavelli þeirra. – Í 3000 metra hindrunarhlaupi kvenna á Helga Guðný Elíasdóttir (ÍR) besta tíma þátttakenda. – Guðjón Dunbar Diaquoi Þorsteinsson (Fjölni) er meðal þátttakenda í þrístökki karla en hann á bestan árangur þátttakenda og lengsta stökk ársins í ár 14,64 m. – Í 3000 metra hindrunarhlaupi karla á Arnar Pétursson (Breiðablik) besta tíma þátttakenda. – Helga Þóra Sigurjónsdóttir (FH) hefur stokkið hæst þátttakenda í ár í hástökki kvenna. – Sindri Hrafn Guðmundsson (FH) er mættur til landsins og stefnir á að verja titilinn í spjótkasti karla en hann á bestan árangur í ár í greininni. – Síðustu greinar mótsins eru svo 1000 metra boðhlaup karla og kvenna. 13:00 400 m grindahlaup kvenna 13:00 Stangarstökk karla 13:00 Þrístökk kvenna 13:00 Kúluvarp kvenna 13:00 Sleggjukast karla 13:15 400 m grindahlaup karla 13:30 800 m kvenna 13:40 800 m karla 14:00 200 m kvenna 14:10 200 m karla 14:15 Sleggjukast kvenna 14:30 3000 m hindrunarhlaup kvenna 14:30 Þrístökk karla 14:50 3000 m hindrunarhlaup karla 14:50 Hástökk kvenna 15:15 Spjótkast karla 15:30 1000 m boðhlaup kvenna 15:45 1000 m boðhlaup karla
Frjálsar íþróttir Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er svo lúðalegt“ McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Dagskráin í dag: Toppslagur í Bestu deildinni Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met Sjá meira