„Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Smári Jökull Jónsson skrifar 10. júlí 2026 12:08 Spáð er allt að 26 stiga hita á Egilsstöðum á morgun. Vísir/Vilhelm Á sama tíma og hitabylgju er spáð á austanverðu landinu varar Vegagerðin við miklu hvassviðri á Snæfellsnesi á morgun. Stjórnarmaður Þjónustusamfélagsins á Héraði segir tjaldsvæði fyrir austan vera að fyllast.
Vegagerðin sendi út ábendingu í morgun vegna hvassviðris sem spáð er á norðvestanverðu landinu og vonast veðurfræðingur til að fólk taki tillit til aðstæðna og verði ekki á ferðinni þegar veðrið verður sem verst. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, lítur til veðurs en Vegagerðin varar við hvassviðri á norðvestanverðu landinu.Vísir/Vilhelm „Kviðurnar verða þetta allt að 30-35 metrar á sekúndu og það þarf að vara við þessu sérstaklega vegna þess að það eru margir með aftanívagna og á stærri húsbílum á ferðinni,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Vegagerðinni. Vonlítill um veðurblíðu Hann segir að búast megi við iljóttum vindi á norðanverðu Snæfellsnesi, Vestfjörðum og Ströndum. Þá megi líka búast við hvassviðri á utanverðum Tröllaskaga og vestanverðan Eyjafjörð. Ekki er mikil von um veðurblíðu á suðvestanverðu landinu á næstunni. „Við erum komin inn í ákveðna veðurstöðu sem er með sunnan- og suðvestan áttum. Það er ekki að sjá að það verði breyting þar á, allavega ekki í þessum hefðbundna spátíma okkar til næstu sjö eða átta daga. Þannig að það skiptast á dagar fyrir sunnan sem eru þurrir og aðrir með talsverðri vætu,“ bætir Einar við. Tjaldsvæðin að fyllast Staðan er hins vegar önnur fyrir austan. Spáð er 26 stiga hita á Egilsstöðum á morgun og samkvæmt Elí Þór Vídó, sem situr í stjórn Þjónustusamfélagsins á Héraði, byrjaði fólk að streyma austur strax á þriðjudaginn. „Ég er búinn að fá fregnir af því frá kollegum mínum og þeim sem ég þekki að tjaldsvæðin, eins og á Hallormsstað, það er orðið vel þétt þar. Á Egilsstöðum er náttúrulega búið að fyllast,“ segir Elí Þór en rætt var við hann í Bítinu í morgun. „Og skemmtilegt nokk, ég er með mína litlu túnspildu og búinn að fá nokkrar fyrirspurnir hvort ég taki að mér að leyfa húsbílnum að leggja hjá mér,“ bætir hann við og segist þó ekki hafa orðið við þeim beiðnum. Þá segir hann að búið sé að fylla á hillur í matvörubúðum. „Þá var búið að leggja mikla áherslu á þegar þessi langtímaspá kom að við skyldum nú vera tilbúin, við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið.“
Sólin Veður Færð á vegum Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira