Óttast að færri leiti sér aðstoðar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 9. júlí 2026 23:02 Vilhjálmur Hjálmarsson varaformaður ÖBÍ segir að komugjaldið hafa veruleg áhrif á viðkvæman hóp öryrkja. Vísir/Ívar Fannar Nýtt komugjald til sjúkraþjálfara kemur illa við örykja og hefur í för með sér að færri leita sér aðstoðar eða seinka endurhæfingu að mati varaformanns ÖBÍ. Málið sé grafalvarlegt þar sem það leiði til aukins kostnaðar fyrir samfélagið á endanum.
Í byrjun september verður tekið upp sérstakt komugjald fyrir sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun. Almennt komugjald verður þá fimmtán hundruð krónur, en þúsund fyrir aldraða og fimm hundruð fyrir öryrkja. Komugjaldið er ótengt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu og er alltaf það sama óháð fjölda koma. „Öryrki þarf kannski að fara einu sinni í viku. Þetta eru þá tuttugu og sex þúsund krónur á ári og þetta er tekið út úr kostnaðarþakinu eða niðurgreiðslunni. Þannig að það tekur líka lengri tíma að komast inn í næsta niðurgreiðsluþrep. Það kemur mjög illa við þennan hóp,“ segir Vilhjálmur Hjálmarsson varaformaður ÖBÍ. Þetta bætist ofan á aðrar hækkanir sem öryrkjar hafi fundið vel fyrir á undanförnum misserum. „Okkar fólk, sem er í þessari stöðu hreinlega, er að berjast í bökkum. Þetta er líka lykilatriði ef fólk er meira að segja í vinnu og á einhverjum launum, þá getur það verið lykilatriði að geta sótt til dæmis sjúkraþjálfun, jafnvel oftar en einu sinni í viku eða bara til þess að halda almennri lífsfærni þó að þú sért ekki í vinnu. Þetta er bara hópur sem þarf að nýta þessa heilbrigðisþjónustu mjög mikið og það er alltaf verið að auka einhverjar álögur.“ Sjúkraþjálfarafélag Íslands sendi frá sér yfirlýsingu vegna komugjaldsins þar sem það gagnrýndi stjórnvöld fyrir skort á samráði en sjúkraþjálfarar óttast að þetta dragi úr því að fólk leiti sér aðstoðar eða seinki endurhæfingu. Vilhjálmur tekur í sama streng. „Það er mjög stór hluti af okkar hópi sem forðast eða frestar því að leita til læknis eða að leita sér að þjónustu eða að leysa út lyfin sín. Þetta er bara grafalvarlegt mál vegna þess að þetta eykur alltaf á vanda heilbrigðiskerfisins og einstaklingsins að sjálfsögðu. Þetta er aukinn kostnaður fyrir samfélagið á endanum. Ég skil ekki alveg hvers vegna er alltaf verið að éta af þessum hópi sem hefur ekki mikið á milli handanna. Hvað gengur stjórnvöldum til?“
Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira