Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Árni Sæberg skrifar 8. júlí 2026 12:05 Hæstiréttur dæmdi Gareese í tveggja ára fangelsi árið 2024. Vísir/Vilhelm Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Gareese Joshua Gray, sem var dæmdur í Hæstarétti fyrir nauðgun, með því að hafa sáðlát yfir andlit sextán ára stúlku, um endurupptöku máls hans.
Í héraðsdómi Norðurlands eystra var Gareese sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi fyrir að hafa fróað sér þar sem hann var klofvega á hnjánum yfir líkama sextán ára stúlku og fengið sáðlát yfir andlit hennar þrátt fyrir að hún gerði honum ljóst að hún væri því mótfallinn. Þá hlaut hann níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára. Landsréttur komst að annarri niðurstöðu og vildi meina að um nauðgun væri að ræða, og dæmdi hann í tveggja ára fangelsi. Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu í desember árið 2024. Svo virðist sem Gareese hafi ekki viljað una þeim dómi Hæstaréttar en samkvæmt úrskurði Endurupptökudóms, sem kveðinn var upp þann 3. júlí en birtur í gær, segir að hann hafi farið fram á endurupptöku máls síns þann 6. janúar síðastliðinn. Ríkissaksóknari hafi lagst gegn því að málið yrði tekið upp á ný. Taldi síma hafa fundist en hann lá fyrir allan tímann Í niðurstöðukafla úrskurðar Endurupptökudóms segir að Gareese hafi byggt á því að ný sönnunargögn hefðu komið fram í málinu, sem réttlætti endurupptöku málsins með vísan til ákvæðis laga um meðferð sakamála þess efnis. Meginforsenda þess hluta endurupptökubeiðninnar hafi hvílt á þeirri staðhæfingu að lögregla hafi, eftir að dómur gekk í málinu, fengið í hendur áður ókannaðan farsíma brotaþola sem hún hefði notað þegar atvik máls gerðust. „Eftirgrennslan Ríkissaksóknara hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra leiddi hins vegar í ljós að enginn nýr farsími hafði borist lögreglu eftir uppkvaðningu dómsins. Sá sími sem er í vörslum lögreglu er sá sami og brotaþoli afhenti 31. maí 2022 og sem lögregla aflaði upplýsinga úr í júní sama ár. Jafnframt liggur fyrir samkvæmt framburði brotaþola að umræddur sími var ekki sá sími sem hún hafði í notkun þegar hin umdeildu samskipti áttu sér stað. Brotaþoli bar hins vegar að skjáskot og skjáupptaka af samskiptunum hefðu síðar verið flutt yfir í þann síma sem hún afhenti lögreglu. Síminn hefði þannig legið fyrir við rannsókn málsins og verið afhentur lögreglu áður en ákæra var gefin út. Þá hafi endurupptökubeiðandi ekki sýnt fram á að í símanum séu tiltekin óþekkt gögn sem ætla megi að hefðu verulega miklu skipt fyrir niðurstöðu málsins. Skilyrðum laga um meðferð sakamála hafi því ekki verið fullnægt. Sönnunarmatið ekki rangt Gareese hafi einnig byggt á því að sönnunarmat Landsréttar hafi verið rangt, annars vegar að því er varðar sönnunargildi rafrænna gagna um samskipti brotaþola og endurupptökubeiðanda og hins vegar að því er varðar trúverðugleika munnlegs framburðar brotaþola, endurupptökubeiðanda og vitna. Jafnframt byggi hann á því að Hæstiréttur hafi ranglega metið aðferð og forsendur Landsréttar við sönnunarmatið, en matið hafi í reynd verið í andstöðu við ólögfestar reglur um mörk frjáls sönnunarmats, reglur rökfræðinnar og almenna skynsemi. Niðurstaða Endurupptökudóms hvað það varðar var að ekki væri talið að Gareese hafi leitt að því verulegar líkur að sönnunargögn málsins hefðu verið rangt metin. Hvorki rannsókn né málsmeðferð ábótavant Loks segir að Gareese hafi talið að rannsókn lögreglu hefði verið haldin verulegum annmörkum, meðal annars vegna þess að lögregla hefði látið hjá líða að rannsaka nákvæmlega dag- og tímasetningu hins ætlaða brots, auk þess sem engar ljósmyndir, teikningar eða mælingar lægju fyrir af vettvangi brotsins. Endurupptökudómur tók ekki undir það með honum. Þá segir að hann hafi byggt á því að brotið hefði verið gegn rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar, meðal annars þar sem verjandi hans hefði ekki fengið aðgang að gögnum á rannsóknarstigi og skýrsla af vitni hefði ekki verið tekið fyrr en seint og um síðir. Endurupptökudómur tók ekki heldur undir það. Niðurstaða dómsins var því að verða ekki við kröfu Gareese um endurupptöku og að hann skyldi greiða þóknun skipaðs verjanda síns fyrir réttinum, eina milljón króna.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Sjá meira