Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Atli Ísleifsson skrifar 8. júlí 2026 08:58 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á fréttamannafundi í Ankara í dag. AP Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi.
Þetta sagði Kristrún í morgun þegar hún ræddi við fjölmiðla á leiðtogafundi NATO sem nú fer fram í Ankara í Tyrklandi. Hún var þar spurð út í ummæli Trump við upphaf fundarins þar sem hann ítrekaði á ný að Grænland ætti að tilheyra Bandaríkjunum. Hann sagði þá að Grænland hjálpi ekki Danmörku og að Danmörk verji ekki nægilegum fjármunum í að hjálpa Grænlandi en það væri mikilvægt fyrir Bandaríkin. „Og það er umkringt kínverskum skipum og rússneskum skipum og það mun ekki gerast,“ sagði Trump í gær. Kristrún sagði að íslensk stjórnvöld hefðu verið mjög skýr í sinni afstöðu þegar kemur að þessu. „Þá á ég við að Grænland tilheyrir Grænlendingum. Þeir vilja ekki vera hluti af Bandaríkjunum. Þeir hafa talað mjög skýrt í þeim efnum. Sömu skilaboð hafa komið frá Mette Fredriksen,“ segir Kristrún. Forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Þetta hafi verið undirliggjandi í athugasemdum sem hafa komið frá honum. „En á sama tíma vil ég vera vongóð í þeim skilningi að ég veit að viðræður eru í gangi, þeir eru að ræða í formlegum vinnuhópi og við þurfum að gefa þeim tíma til að þróast á þessum tímapunkti,“ sagði Kristrún.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Utanríkismál NATO Tengdar fréttir Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra. 7. júlí 2026 21:29 Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Dani ekki verja nægum fjármunum til að hjálpa Grænlandi, og á móti hjálpi Grænlendingar Danmörku ekki nægjanlega vel. 7. júlí 2026 15:24 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Sjá meira
Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra. 7. júlí 2026 21:29
Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Dani ekki verja nægum fjármunum til að hjálpa Grænlandi, og á móti hjálpi Grænlendingar Danmörku ekki nægjanlega vel. 7. júlí 2026 15:24