Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sigurgeir Þorkelsson skrifar 8. júlí 2026 08:06 Rodney Coronado fer fyrir aðgerð Bandero. Samsett Paul Watson býður nú peningaverðlaun, tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvern þann sem vísað getur á staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals ehf.
Í sameiginlegri færslu Watsons og samtaka hans á miðlinum Instagram kemur fram að skip þeirra, Bandero, nái aldrei að komast í návígi við hvalveiðiskipin vegna þess að Landhelgisgæslan deili staðsetningu Bandero í rauntíma. Samtökin bjóða nú peningaupphæð fyrir hvern þann sem fært getur þeim rauntímaupplýsingar um staðsetningu Hvals 8 og Hvals 9 svo Bandero geti „skorið á leið þeirra“. „Þetta er Aðgerð ´86,“ segir í lok færslunnar og er þar líklega vísað til atburðanna 1986 þegar samtök Watsons sökktu tveimur íslenskum hvalveiðiskipum, Hval 6 og Hval 7, í Reykjavíkurhöfn. Færslan inniheldur myndband þar sem áhafnarmeðlimir Bandero stíga fram og óska eftir frekari upplýsingum eða fjárframlögum svo hægt sé að hækka peningaverðlaunin enn frekar. Í máli þeirra kemur fram að langreyðar séu dýrategund sem sé í viðkvæmri stöðu. „Við höfum hægt á drápunum en höfum ekki getað stöðvað þau enn,“ segir einn áhafnarmeðlima. View this post on Instagram A post shared by Captain Paul Watson Foundation (@captainpaulwatson) Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, hafði fylgt Bandero eftir eins og skugginn í rúmlega viku frá því að það kom til landsins en þurfti frá að hverfa í gær vegna annarra þarfra verkefna, líkt og vatsskorts í Flatey. Gagnrýnt hefur verið, meðal annars af framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, að íslensk stjórnvöld hafi deilt upplýsingum sem innihéldur staðsetningu skipanna þar sem slíkt ógnaði öryggi starfsfólk. Matvælastofnun breytti í kjölfarið vinnulagi sínu.
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalir Tengdar fréttir Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, sem hefur fylgt Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, eins og skugginn síðustu daga hefur nú yfirgefið þau mið sem Bandero heldur sig á og sinnir öðrum verkefnum. Þar á meðal er vatnsskortur í Flatey. 7. júlí 2026 13:02 „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ „Ég bara ítreka það að þetta eru náttúrulega alvarlegar ásakanir. Ef menn eru komnir í slíkt rökþrot þegar þeir fara í persónuna í staðinn fyrir málefnið þá held ég að menn séu bara komnir á slæman stað.“ 7. júlí 2026 12:36 Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira
Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, sem hefur fylgt Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, eins og skugginn síðustu daga hefur nú yfirgefið þau mið sem Bandero heldur sig á og sinnir öðrum verkefnum. Þar á meðal er vatnsskortur í Flatey. 7. júlí 2026 13:02
„Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ „Ég bara ítreka það að þetta eru náttúrulega alvarlegar ásakanir. Ef menn eru komnir í slíkt rökþrot þegar þeir fara í persónuna í staðinn fyrir málefnið þá held ég að menn séu bara komnir á slæman stað.“ 7. júlí 2026 12:36