Orðspor og ímynd bíður hnekki Haukur Hinriksson skrifar 7. júlí 2026 20:32 Í þónokkurn tíma hef ég tekið til varna og jafnvel dáðst af umbótum alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA eftir hneykslismál 2015. Sambandið hefur frá þeim tíma stórbætt alla sína stjórnarhætti, stóraukið gagnsæi í allri ákvarðanatöku og upplýsingagjöf, sett á laggirnar ítarlegar siðareglur og hlítnireglur og stóreflt allt samráð við hagsmunaaðila. Nú lítur út fyrir að þeirri vegferð hafi verið siglt í strand og það illilega. Um áratugaskeið hefur verið til meginregla um sjálfkrafa leikbönn þeirra leikmanna og annarra sem fá að líta rauð spjöld, hvort heldur sem um er að ræða tvö gul sem leiða til brottvísunar eða beint rautt spjald. Reglan, sem er einföld, er og hefur verið rótgróin í alþjóðlegum fótbolta lengi. Hér á landi er reglan orðuð þannig að leikbanni sem leikmaður fær sjálfkrafa verður ekki áfrýjað. Sambærilega reglu er að finna í 66. grein agareglugerðar FIFA þar sem segir að brottvísun leiði sjálfkrafa til leikbanns í a.m.k. einn leik. Dómstólar FIFA hafa ekki og mega ekki hagga við sjálfkrafa leikbanni í næsta leik sem afleiðing brottvísunar. Mikilvægt er að halda því til að haga að dómstólar geta þó, ef ástæða er til, ákveðið að þyngja viðeigandi leikbann. Þ.e. þeim hluta leikbanns sem ekki telst sjálfkrafa. Úr agareglugerð FIFA: „A sending-off automatically incurs suspension from the subsequent match. The FIFA judicial bodies may impose additional match suspensions and other disciplinary measures.” Frá þessu er undanþága í 9. grein agareglna FIFA sem varðar augljós mistök dómara (obvious error). Sú regla getur átt við ef röngum leikmanni hefur verið sýnt rautt spjald. Það getur gerst ef öðrum en þeim sem raunverulega gerðist brotlegur hafi fyrir slysni verið vísað af velli. Við þær aðstæður getur viðeigandi leikbann verið fært á þann aðila sem í raun gerðist brotlegur. Til að girða alfarið fyrir öll mótmæli við brottvísun segir í agareglugerð FIFA að mótmæli gegn rauðum spjöldum séu aðeins heimil ef dómari hafi sannarlega ruglað saman nöfnum leikmanna: „A protest against a caution or a sending-off from the field of play after two cautions is admissible only if the referee’s error was to mistake the identity of the player.” Ákvörðunarvald dómara til að meta hvort ástæða sé til að áminna leikmann og/eða veita honum brottvísun verður rakið til 5. greinar knattspyrnulaganna. Úrskurðir dómarans varðandi atvik leiksins, þ.m.t. hvort mark sé skorað eða ekki og úrslit leiksins, eru endanlegir. Dómarinn getur ekki breytt úrskurði sínum um nein þau atvik sem dæmd eru eftir að leikur hefur verið flautaður á að nýju hvort heldur vegna brots eða annarra atvika. Af því leiðir jafnframt að viðurlögum dómara sem beitt hefur verið í leik verða ekki endurskoðuð af úrskurðaraðilum nema í hreinum undantekningartilfellum, sbr. hér fyrir ofan. Alvarlegast í þessu öllu saman finnst mér að nú, á allra stærsta sviði knattspyrnunnar – sjálfu heimsmeistaramótinu, geri dómstólar FIFA svo augljós, afdrifarík og glórulaus mistök. Kringumstæður vekja vitaskuld upp spurningar almennings um heilindi að baki slíkrar ákvörðunar. Pólitískir þættir spilar þar stóra rullu og eðlilega dregur fólk ályktanir í svo óhreinu lofti. Í mínum augum eru kringumstæður þó ekki endilega í aðalhlutverki í málinu. Ákvörðunin um að fella niður sjálfkrafa leikbann er bara röng, hún er óheimil og á sér enga hliðstæðu í núverandi lagaumhverfi knattspyrnuhreyfingarinnar. Svona augljós mistök og rangindi grafa undan allri þeirri góðu og faglegu vinnu sem unnin hefur verið undanfarin áratug innan knattspyrnufélaga, knattspyrnusambanda og álfusambanda ásamt hagsmunasamtökum félaga og leikmanna. Ég tek því fagnandi að álfusamband okkar í Evrópu UEFA hafi stigið fast inn í málið og stutt málflutning Belgíu. Mál eins og þetta skal ekki og má ekki endurspegla knattspyrnuhreyfinguna í heild. Það breytir engu að leikur Belgíu og Bandaríkjanna sé búinn. Málinu er ekki lokið og ég bíð eftir fregnum þess að málið verði til lykta leitt með fullnægjandi hætti. Höfundur er framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Víkings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein HM 2026 í fótbolta Mest lesið Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun