Steypubíllinn kominn úr ánni Eiður Þór Árnason skrifar 7. júlí 2026 16:15 Á vettvangi áður en viðbragðsaðilar komu á staðinn. aðsend Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar en ökumaður bílsins fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. Bíllinn er í eigu Steypustöðvarinnar samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu.
Ökumaður bílsins var fluttur á Landspítala með þyrlu Landhelgisgæslunnar upp úr klukkan átta í gærkvöldi vegna ofkælingar og var talinn hafa sloppið vel. Hann hafði komið sér fyrir ofan á steypubílnum sem lá á hlið ofan í Þjórsá þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Útkall barst vegna málsins á áttunda tímanum og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar komin á staðinn um átta mínútur yfir átta, að sögn upplýsingafulltrúa hennar. Lögregla og björgunarsveit tóku einnig þátt í aðgerðum og greip Landsvirkjun til ráðstafana eftir að tilkynning barst um atvikið í gær. „Við minnkuðum rennslið frá Sultartangalóni til að auðvelda þeim að athafna sig á meðan þeir voru að ná [bílnum] upp úr sem gekk svo greiðlega. Þeir gátu farið með gröfu þarna út í og kranabíl og dregið hann upp á bakka,“ segir Ragnhildur Sverrisdóttir hjá Landsvirkjun. Aðgerðin hafi tekið innan við klukkutíma og steypubíllinn verið kominn á land klukkan þrjú í dag. „Þannig að þetta hefur gengið mjög vel.“ Handriðið er illa farið.Vegagerðin Vegagerðin lokaði fyrir umferð um brúnna þar sem bíllinn fór út af í gærkvöldi vegna skemmda á brúarhandriði. Gert er ráð fyrir að viðgerð taki nokkra daga og leiðin verði lokuð eitthvað fram í vikuna. Hjáleið er um Landveg (26) til að komast í Landmannalaugar eða á Sprengisandsleið. Klippa: Frá björgunaraðgerðum þar sem steypubíll fór í Þjórsá Á vettvangi áður en viðbragðsaðilar komu á staðinn.Aðsend Fréttin hefur verið uppfærð.
Samgönguslys Landsvirkjun Björgunarsveitir Skeiða- og Gnúpverjahreppur Rangárþing ytra Tengdar fréttir Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Brúin yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi verður lokuð næstu daga vegna skemmda á brúarhandriði. Umferðaróhapp varð á brúnni í gærkvöldi. 7. júlí 2026 10:05 Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi um klukkan hálf átta í kvöld vegna steypubíls sem hafði lent út í Þjórsá. Ökumaður hans var orðinn kaldur og því fluttur á Landspítala til aðhlynningar. 6. júlí 2026 21:07 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Brúin yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi verður lokuð næstu daga vegna skemmda á brúarhandriði. Umferðaróhapp varð á brúnni í gærkvöldi. 7. júlí 2026 10:05
Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi um klukkan hálf átta í kvöld vegna steypubíls sem hafði lent út í Þjórsá. Ökumaður hans var orðinn kaldur og því fluttur á Landspítala til aðhlynningar. 6. júlí 2026 21:07