Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Kjartan Kjartansson skrifar 7. júlí 2026 13:27 Nigel Farage gagnrýndi fjölmiðla og stjórnvöld í ávarpi þar sem hann kynnti afsögn sína sem þingmaður í dag. AP/Garth Fuller/PA Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, ætlar að segja af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir sem hann þáði frá auðkýfingum. Hann ætlar að bjóða sig aftur fram til þingsætisins.
Mikið hefur verið fjallað um gjafir sem Farage hefur þegið frá auðkýfingum, nú síðast frá dæmdum sakamanni, áður en hann var kjörinn á breska þingið árið 2024. Breskir þingmenn þurfa að gefa upp framlög allt að ári áður en þeir taka sæti nema um einkagjafir sé að ræða. Siðanefnd breska þingsins var þegar að rannsaka fé sem Farage þáði frá rafmyntafjárfesti til þess að greiða fyrir öryggisgæslu. Sunday Times sagði svo frá því um helgina að annar rafmyntamógúll hefði gefið Farage gjafir sem hann gaf ekki upp. Sá hlaut fjársvikadóm í Bandaríkjunum og sat inni vegna þess. Í kjölfarið hefur komið í ljós að hann virðist hafa unnið fyrir Umbótaflokk Farage. Í löngu sjónvarpsávarpi um framtíð hans í stjórnmálum sagðist Farage ætla að segja af sér þingmennsku. Hann ætlaði hins vegar að bjóða sig fram í aukakosningum um þingsætið í Clacton-kjördæmi enda hefði hann ekkert gert af sér. Hélt Farage því fram að margt í nýjustu umfjöllun Sunday Times væri rangt eða málinu óviðkomandi. Þrátt fyrir það hefði siðanefnd þingsins hafið rannsókn sem hann lýsti sem „pólitísku verkfæri“. Sakaði hann yfirvöld um að leka persónuupplýsingum í fjölmiðla. „Ráðandi öfl hafa ákveðið að þau geti ekki unnið okkur í sanngjörnum slag og að nota bellibrögð í staðinn,“ sagði Farage. Eignaði sér heiður af Brexit og falli Starmer Farage fór um víðan völl í ávarpinu. Hann hefði sætt ofsóknum og áreiti og dóttir hans sömuleiðis. Eignaði hann sér heiður af Brexit og að hafa valdið falli Keirs Starmer sem forsætisráðherra. Um gjöfina sem hann fékk frá dæmda sakamanninum sagði Farage að hún hefði verið án allra skilyrða og að hann hefði getað gert hvað sem hann vildi með féð. Líkti hann gjöfinni við happdrættisvinning. Að eigin mati hefði hann farið eftir reglum breska þingsins samkvæmt þeim lögfræðilegum ráðleggingum sem hann hefði fengið. „Viljum við leiðtoga sem kunna að þéna?“ spurði Farage í ávarpinu og gagnrýndi að breskir ráðherra kynnu ekkert með peninga að fara. Það væri ekki glæpur fyrir stjórnmálamenn að græða peninga. Farage hlaut rúm 46 prósent atkvæða í Clacton í kosningunum árið 2024, hátt í tuttugu prósentustigum meira en frambjóðandi Íhaldsflokksins. Handtekinn í kringum landsfund repúblikana 2016 Uppljóstranir Sunday Times um helgina vörðuðu gjafir frá George Cottrell, rafmyntamógúli, sem var dæmdur fyrir fjársvik í Bandaríkjunum árið 2017. The Guardian segir að Cottrell hafi verið handtekinn á landsþingi Repúblikanaflokksins árið 2016 þar sem hann var með hópi breskra Brexit-sinna, þar á meðal Farage. Cottrell gaf út bók fyrr á þessu ári um hvernig ætti að þvætta fé sem var titluð sem leiðbeiningar fyrir yfirvöld. Farage og Umbótaflokkur hans hafa haldið því fram að gjafirnar sem Farage þáði frá Cottrell hefðu verið ótengdar stjórnmálastarfi hans og þannig undanþegnar reglum þingsins. Breskir fjölmiðlar hafa vefengt það enda hafi Cottrell verið með nafnspjald frá Umbótaflokknum sem á var letrað tölvupóstfang Farage sjálfs. Fréttin verður uppfærð.
Bretland Rafmyntir og sýndareignir Kosningar í Bretlandi England Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira