Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum Tómas Arnar Þorláksson skrifar 7. júlí 2026 13:02 Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, sem hefur fylgt Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, eins og skugginn síðustu daga hefur nú yfirgefið þau mið sem Bandero heldur sig á og sinnir öðrum verkefnum. Þar á meðal er vatnsskortur í Flatey.
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu. Bandero hefur verið staðsett um 40 sjómílur frá Íslandsströndum síðustu daga í leit að hvalveiðibátum Hvals hf. í því skyni að binda enda á hvalveiðar með einum eða öðrum hætti. Samkvæmt leiðangursstjóra Bandero er skipið nú statt þar sem flestir hvalir hafa verið veiddir á þessu hvalveiðitímabili. Þór hefur verið með skipið í gæslu síðan 28. júní enda hefur áhöfnin um borð ítrekað hótað að láta til skara skríða og hafa áhrif á hvalveiðar. Skipið hefur nú verið kallað frá þessu verkefni. Bandero hefur enn sem komið er ekki gert sig líklegt til að halda inn í íslenska landhelgi. „Staðan varðandi Bandero er sú sama og verið hefur. Skipið hefur ekkert komist í nálægð við hvalveiðiskipin og staðan er þannig að Þór er kominn til annarra eftirlitsstarfa. Það auðvitað eru fjölmörg verkefni sem að bíða okkar á hafsvæðinu en við höfum bara okkar leiðir til þess að fylgjast með Bandero og vitum nákvæmlega hvar skipið er,“ segir Ásgeir sem tekur fram að þyrlur, flugvélar og skip Landhelgisgæslunnar séu tilbúin að bregðast við í snatri ef eitthvað skeður. Fylgst er með Bandero með hjálp fjareftirlitskerfis og þá gefur áhöfnin um borð upp staðsetningu sína til Landhelgisgæslunnar. Spurður hvaða verkefnum skipið sé að sinna segir Ásgeir: „Bæði almenn eftirlitsstörf og síðan sömuleiðis er verið að flytja 35 tonn af ferskvatni út í Flatey. Það var leitað til Landhelgisgæslunnar vegna vatnsskorts í eynni og sú vinna stendur yfir núna. Það gerist stundum að það er vatnsskortur þar á sumrin og það er verið að fylla á tankana. Það eru auðvitað fjölmörg önnur verkefni sem að bíða skipsins. Það eru auðvitað fjölmörg bæði vitaverkefni, hefðbundin löggæsla, fiskveiðieftirlit og þar fram eftir götunum.“
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira