„Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Bjarki Sigurðsson skrifar 8. júlí 2026 07:02 María Pálsdóttir rekur Hælið, setur um sögu berkla, við Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit. Vísir/Bjarki Óvissa ríkir um starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesspítala eftir að mygla greindist. Velunnari spítalans segir stöðuna sorglega og óttast að Kristnes verði að draugabæ.
Kristnesspítali var byggður árið 1927 sem berklahæli. Starfsemi spítalans hefur breyst reglulega á þessum 99 árum en síðustu ár hefur Sjúkrahúsið á Akureyri rekið þar endurhæfingardeild. Mygla greindist þar fyrr á árinu og nú verður starfsemin færð inn á Akureyri. Hvað verður um spítalann er óvitað en óttast er að starfsemin flytji þaðan til frambúðar. Til að mynda hefur Maríu Pálsdóttur, eiganda Hælisins, seturs um sögu berklanna, verið sagt að undirbúa sig undir að missa húsnæðið. „Ég er einhvern veginn ekkert farin að hugsa hvað verður um þetta. Ég vil auðvitað að sýningin fái að standa. Hvað verður um þetta þorp og þessi hús veit enginn held ég enn þá. Ef ríkið eða sjúkrahúsið ætla að sleppa tökunum, hver grípur það þá? Er það Eyjafjarðarsveit eða ríkt fólk úti í heimi? Ég veit það ekki. En vonandi að sá sem tekur við þessu vilji hafa þessa sýningu því hún er einstök á heimsvísu,“ segir María. María er uppalin í Reykhúsum, næstu jörð við Kristnes, og hefur stofnað undirskriftarlista þar sem yfir sautjánhundruð manns skora á stjórnvöld að fjármagna viðhald og uppbyggingu á Kristnesi. „Spítalinn verður hundrað ára á næsta ári. Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf. Bara myglað, lokum þessu, hættum þessu, flytjum starfsemina. Nei, við hljótum að geta gert betur. Við hljótum að geta safnað liði, safnað pening og gert við þetta. Mér skilst að þetta sé botnplatan sem er ónýt og það vanti tvo milljarða. Við getum örugglega galdrað fram tvo milljarða ef við viljum. Ég er sannfærð um það,“ segir María. Eins og var gert árið 1927 því ríkið greiddi helming kostnaðarins og safnað var fyrir hinum helmingnum. Til sýnis á setrinu er einmitt skrá um alla þá sem gáfu í söfnunina.
Eyjafjarðarsveit Húsavernd Heilbrigðismál Sjúkrahúsið á Akureyri Heilsa Söfn Tengdar fréttir Ólafur Ragnar Grímsson tengist Hælinu í Kristnesi „Eina læknisráðið var að veita sjúklingum gott húsaskjól, næringarríkan mat og frískt loft.“ Hér er verið að vitna í berklahælið á Kristnesi í Eyjafirði en þangað kemur fjöldi fólks til að skoða sýningu um sögu berklanna. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti kemur við sögu á safninu. 21. júlí 2022 21:04 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira
Ólafur Ragnar Grímsson tengist Hælinu í Kristnesi „Eina læknisráðið var að veita sjúklingum gott húsaskjól, næringarríkan mat og frískt loft.“ Hér er verið að vitna í berklahælið á Kristnesi í Eyjafirði en þangað kemur fjöldi fólks til að skoða sýningu um sögu berklanna. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti kemur við sögu á safninu. 21. júlí 2022 21:04