Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2026 14:32 Xbox er einn af risunum á leikjatölvumarkaði. Hallað hefur undan fæti hjá fyrirtækinu að undanförnu og nú taka við umfangsmiklar uppsagnir á starfsfólki. Vísir/EPA Tæknirisinn Microsoft tilkynnti að fimmtungi starfsmanna við Xbox-leikjatölvudeild hans yrði sagt upp störfum. Alls var tveimur prósentum starfsliðs Microsoft sagt upp en fyrirtækið eys nú fúlgum fjár í þróun gervigreindar.
Um 1.600 starfsmönnum Xbox verður sagt upp strax og 1.250 til viðbótar næsta árið. Í heildina verður 4.800 manns sagt upp störfum hjá Microsoft, að því er kemur fram í frétt New York Times. Niðurskurðurinn nær einnig til leikjaframleiðenda í eigu Xbox, þar á meðal Activision Blizzard sem er þekktast fyrir leikjaraðirnar Call of Duty og Warcraft. Önnur stúdíó verða seld út úr Xbox. Óvíst er um framtíð Arkane Studios sem er þekktast fyrir Dishonored-leikina. Xbox hafði varið milljörðum dollara í að kaupa leikjaframleiðlendur á undanförnum árum, þar á meðal Activision Blizzard fyrir 69 milljarða dollara árið 2023. Veldi leikjatölvuframleiðandans sögufræga hefur hins vegar hnignað á undanförnum árum og tap verið á rekstri dótturfélaga hans. Á sama tíma hefur gervigreindarkapphlaupið, sem Microsoft er stórtækur þátttakandi í, stóraukið eftirspurn eftir íhlutum eins og minniskortum og keyrt upp verð. Microsoft greindi frá því í vor að fyrirtækið ætlaði sér að verja um 190 milljörðum dollara í gagnaver og aðra innviði fyrir gervigreind á ári. Á sama tíma hefur það fækkað starfsfólki verulega líkt og fleiri tæknifyrirtæki hafa gert.
Leikjavísir Microsoft Gervigreind Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira