Viðskipti innlent

Al­var­legt að for­stjóri Sam­keppnis­eftir­litsins taki undir með ASÍ og FÍB

Eiður Þór Árnason skrifar
Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg

Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins (SKE) í umræðu um matvöruverslanir og olíufélög. Þá gagnrýna þau að forstjóri stofnunarinnar hafi tekið undir málflutning Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Alþýðusambands Íslands.

Að mati samtakanna vekja tvö nýleg umræðuskjöl SKE um verð í dagvöruverslunum og eldsneytismarkað upp alvarlegar spurningar um það hvernig eftirlitið sinni lögbundnu hlutverki sínu og umræðuskjölin innihaldi „órökstuddar ályktanir“.

Í nýju umræðuskjali SKE um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25 prósent að raunvirði á sama tímabili. Álagning er sögð hafa hækkað verulega á síðustu árum og verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum aukist á sama tíma. Þá hafi hækkanir á olíuverði skilað sér hraðar út í verðlag á dælu en lækkanir.

„Umræðuskjölin bera þess merki að Samkeppniseftirlitið hafi á köflum valið framsetningu sem vekur grunsemdir um háttsemi fyrirtækja áður en rannsókn er lokið. Þótt eftirlitið kalli skjölin umræðuskjöl eru þar settar fram staðhæfingar og vísbendingar sem geta haft veruleg áhrif á orðspor fyrirtækja áður en þau hafa fengið endanlegt tækifæri til að tjá sig,“ segir í yfirlýsingu SA og SVÞ.

Í júní birti SKE umræðuskjal um dagvörumarkaðinn en þar sagði meðal annars að Íslendingar borgi 55 prósentum meira fyrir matvöru að jafnaði en íbúar Evrópusambandsins. Þá hafi verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020 til 2025.

Benedikt S. Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.Vísir/Einar

SA og SVÞ gagnrýna að í báðum umræðuskjölunum séu settar fram sterkar ályktanir um markaðshegðun, framlegð og samkeppni „þótt eftirlitið viðurkenni sjálft að rannsóknir séu enn í gangi, frekari gögn og skýringar liggi ekki fyrir og samanburður við önnur ríki sé háður verulegum fyrirvörum.“

Eigi ekki að staðfesta fullyrðingar hagsmunaaðila

Samtökin segja það alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafi í fjölmiðlum lýst því yfir að efni umræðuskjalanna styðji málflutning hagsmunasamtaka á borð við FÍB og ASÍ.

„Slík ummæli vekja óhjákvæmilega þá spurningu hvort ferli umræðuskjalsins sé raunverulega opið eða hvort niðurstaðan hafi í reynd verið mótuð áður en umsagnir markaðsaðila hafa verið metnar. Hlutverk sjálfstæðs samkeppnisyfirvalds er að leggja sjálfstætt og hlutlægt mat á gögn, ekki að staðfesta fyrirfram framkomnar fullyrðingar einstakra hagsmunaaðila.“

Olíuverð hefur verið mikið í deiglunni.Vísir/vilhelm

Þá segja hagsmunasamtökin að Samkeppniseftirlitið hafi í samanburði sínum við erlenda markaði ekki gert nógu vel grein fyrir öðrum mögulegum skýringum á verðþróun, á borð við smæð markaðar, launakostnað, flutningskostnað, innkaupasamninga, birgðahald eða aðra kostnaðarþætti.

„Það eitt að verð á Íslandi sé hátt eða hækki hraðar en annars staðar sýnir ekki sjálfkrafa fram á að orsökin sé skortur á samkeppni. Slíkar ályktanir krefjast mun ítarlegri hagfræðilegrar greiningar en fram kemur í skjölunum.“

Ólíkt öðrum umræðuskjölum

Samtökin fullyrða að umræðuskjöl SKE séu ólík því sem fyrirtæki hafi vanist hjá öðrum evrópskum samkeppnisyfirvöldum. 

„Í stað þess að nota umræðuskjöl fyrst og fremst til að setja fram opnar rannsóknarspurningar og kalla eftir gögnum eru þar á köflum settar fram órökstuddar ályktanir og möguleg íhlutun stjórnvalda rædd áður en rannsókn er lokið og umsagnir hafa verið metnar.“

„Umræðuskjöl eiga að vera vettvangur fyrir opin skoðanaskipti, þar sem gögn eru lögð fram, óvissa viðurkennd og kallað eftir sjónarmiðum áður en niðurstöður eru dregnar fram. Þessi skjöl gefa hins vegar á köflum allt aðra mynd.“

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna

Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi.

Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna

Ekki er hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði þess samkvæmt nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Ýmsum spurningum sé enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar.

Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru

Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×