Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Kristján Már Unnarsson skrifar 30. júní 2026 22:55 Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. Egill Aðalsteinsson Oddviti Húnabyggðar vonast til að orka Blönduvirkjunar muni í vaxandi mæli nýtast til atvinnuuppbyggingar á Blönduósi með nýrri byggðalínu. Hann hvetur jafnframt til þess að meira verði virkjað á Blöndusvæðinu sem fyrst.
Við Blönduós er verið að tvöfalda gagnaver Borealis og kalla framkvæmdirnar á allt að tvöhundruð manns í vinnu. Samtímis verða til milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf í héraðinu vegna gagnaversins. Starfsemi þess byggir alfarið á raforku Blönduvirkjunar, sem hefur lengst af verið vannýtt, vegna takmarkaðra flutningslína. Oddvitinn segir það núna horfa til bóta. „Loksins erum við að sjá fram á það með nýrri byggðalínu, sem á að spennusetja hér 2028-2029, hingað niður eftir, að hér geti orðið raunveruleg uppbygging og með orku úr Blönduvirkjun,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. Úr vélasal Blönduvirkjunar.Einar Árnason Hann segir að raforka upp á tugi megavatta hafi í reynd verið innilokuð í Blönduvirkjun. Þá orku vill hann sjá nýtast heima í héraði. „Ég sé það svo fyrir mér að með þessari legu á byggðalínunni að þá breytist þetta. Þetta verður hér bara í rauninni nýr orkuafhendingarstaður af hálfu Landsvirkjunar og hinna orkufyrirtækjanna.“ Séð yfir svæði gagnavers Borealis.Egill Aðalsteinsson Guðmundur Haukur hvetur til þess að meira verði virkjað. „Við eigum hér líka orkukosti sem eru tilbúnir í rammaáætlun, sem eru Blönduveitur og Blöndulundur. Þetta eru virkjanakostir sem Landsvirkjun er með. Allavega með Blönduveitur þá er ekkert því til fyrirstöðu að þeir fari bara að hefja vinnu við það og koma orkunni sem fyrst í vinnu hingað niður eftir.“ -Þannig að þið viljið láta virkja meira hérna uppi á fjöllum? „Þetta er þegar raskað svæði og þar eigum við að virkja,“ svarar forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Húnabyggð Landsvirkjun Vatnsaflsvirkjanir Gagnaver Orkumál Tengdar fréttir Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Landsvirkjun og Borealis Data Center hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Um er að ræða langtímasamning um kaup á 12 MW forgangsorku til viðbótar við núgildandi samning. 23. júní 2026 14:00 Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis við Blönduós til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á allt að tvöhundruð manns í vinnu á verktíma. Oddviti Húnabyggðar segir að milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf séu að verða til í héraðinu vegna gagnaversins. 16. júní 2026 07:07 Boðið upp í lengstu lyftuferð á landinu Hæsta lyfta Íslands, sem ætluð er til fólksflutninga milli hæða, er ekki í Hallgrímskirkjuturni. Nei, í Húnavatnssýslum er lyfta sem er fjórfalt hærri en sú á Skólavörðuholtinu. 8. apríl 2019 21:00 Telja Blönduvirkjun bjóða upp á frekari uppbyggingu í héraði Stækkun Blönduvirkjunar og betri flutningslínur þaðan skapa enn frekari tækifæri til uppbyggingar á Blönduósi, að mati ráðamanna í héraði. 1. apríl 2019 21:45 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Landsvirkjun og Borealis Data Center hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Um er að ræða langtímasamning um kaup á 12 MW forgangsorku til viðbótar við núgildandi samning. 23. júní 2026 14:00
Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis við Blönduós til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á allt að tvöhundruð manns í vinnu á verktíma. Oddviti Húnabyggðar segir að milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf séu að verða til í héraðinu vegna gagnaversins. 16. júní 2026 07:07
Boðið upp í lengstu lyftuferð á landinu Hæsta lyfta Íslands, sem ætluð er til fólksflutninga milli hæða, er ekki í Hallgrímskirkjuturni. Nei, í Húnavatnssýslum er lyfta sem er fjórfalt hærri en sú á Skólavörðuholtinu. 8. apríl 2019 21:00
Telja Blönduvirkjun bjóða upp á frekari uppbyggingu í héraði Stækkun Blönduvirkjunar og betri flutningslínur þaðan skapa enn frekari tækifæri til uppbyggingar á Blönduósi, að mati ráðamanna í héraði. 1. apríl 2019 21:45