„Við þurfum bara að horfa á björtu hliðarnar“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. júní 2026 18:09 Helga Rut er fyrirliði U19 landsliðs Íslands. Judit Cartiel - UEFA Helga Rut Einarsdóttir var sársvekkt með 3-0 tap Íslands gegn Austurríki í fyrsta leik Evrópumótsins hjá U19 landsliðinu en kýs að horfa á björtu hliðarnar sem stelpurnar okkar sýndu. „
Ég er bara mjög svekkt. Við byrjuðum leikinn vel. Spiluðum okkar leik og vorum bara með vel kveikt á okkurfyrstu tuttugu mínúturnar. Síðan bara féllum við einhvern veginn til baka eftir þessar fyrstu tuttugu mínútur, ég get ekki alveg sagt akkúrat núna af hverju það gerðist,“ sagði fyrirliðinn eftir leik. Eftir mjög sterka byrjun Íslands tók Austurríki forystuna þvert gegn gangi leiksins. Hápressa Austurríkis bar þá loks árangur og þær unnu boltann á vallarhelmingi Íslands. Helga Rut var næstum því búin að stoppa sóknina en hrasaði við. „Já, Austuríkisgellan dettur á mig og ég lendi í einhverju klafsi með Jónínu. Svo er hún bara ein á móti marki. Þetta var algjört klúður. Óheppilegt.“ Ísland fékk síðan annað mark á sig, eftir hornspyrnu, rétt fyrir hálfleik. „Það var erfitt en við ætluðum ekkert að gefa eftir. Auðvitað er samt erfiðara að fara 2-0 undir inn í hálfleikinn heldur en 1-0 og auðvitað skellur að það hafi verið eftir fast leikatriði.“ Svekkelsið var sjáanlegt þegar Austurríki skoraði annað mark rétt fyrir hálfleik. Þriðja markið kom svo í uppbótartíma en þrátt fyrir svekkjandi tap sá Helga margt jákvætt í leik íslenska liðsins. „Hundrað prósent. Við erum sjúklega gott lið, með mikla orku og mikla baráttu. Við þurfum bara að spila níutíu mínúturnar eins og við gerðum fyrstu tuttugu. Við erum meira en færar um að gera það. Það var margt jákvætt, þannig að við þurfum bara að horfa á björtu hliðarnar og taka það með í næsta leik.“ Helga Rut, fyrirliði Íslands U19. Judit Cartiel - UEFA
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira