Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lovísa Arnardóttir skrifar 28. júní 2026 10:00 Harry og Meghan hafa ekki komið saman með börnin til Bretlands í um fjögur ár. Þau stefna á heimsókn í júní. Myndin er tekin í nýlegri heimsókn íÁstralíu. Vísir/EPA Harry, hertoginn af Sussex, endurskoðar nú plön sín um að koma með Meghan Markle, eiginkonu sína og börn þeirra tvö til Bretlands í næsta mánuði eftir að beiðni hans um lögregluvernd var hafnað. Fjallað er um málið á vef BBC.
Þar segir að Harry prins, eiginkona hans Meghan og tvö börn þeirra, Archie og Lilibet, hafi verið búin að plana fyrstu fjölskylduheimsóknina til Bretlands í fjögur ár í sumar. Teymi hans hafi sent inn formlega beiðni um lögregluvernd á meðan á dvöl þeirra í Bretlandi stæði en þeim var að sögn tilkynnt á föstudag að engin öryggisgæsla yrði veitt í boði skattgreiðenda. Karl Bretakonungur hitti barnabörnin sín síðast á platínuafmælishátíð Elísabetar II drottningar árið 2022. Harry prins hitti Karl föður sinn síðast í september þegar hann drakk te með honum í Clarence House, sem var fyrsti fundur þeirra augliti til auglitis síðan í febrúar 2024. Í frétt BBC er haft eftir heimildarmönnum að Harry prins sé miður sín en að hann vilji finna leið til að láta ferðina ganga upp. Samkvæmt fréttinni hafa Harry prins og Meghan þegar þegið boð um að dvelja á konunglegri eign meðan á ferðinni stendur sem gestir Karls konungs. Ekki hefur verið gefin upp staðsetning á því hvar það nákvæmlega er en í frétt BBC kemur fram að búist sé við því að þau leiti einnig í einkagistingu meðan á ferðinni stendur. Aðeins í boði á eign konungs Lögregluvernd yrði í boði á meðan dvalið væri á eign konungsins en utan þess tíma yrði Harry prins að treysta á einkaöryggisteymið sem ferðast með honum frá Kaliforníu. Fjölskyldan á samkvæmt plani að vera í Bretlandi í um fimm daga. Meghan, hertogaynja af Sussex, hafði í hyggju að taka þátt í ýmsum opinberum viðburðum með eiginmanni sínum í London og víðar. Heimsóknin var tímasett til að marka upphaf árslangrar niðurtalningar á Invictus-leikunum fyrir slasaða hermenn sem eiga að fara fram í Birmingham í júlí á næsta ári. Harry prins er einn af stofnendum leikanna. Í fyrri heimsóknum hefur Harry prins hafnað boði um að dvelja í Buckingham-höll vegna áhyggja af öryggi sínu og annarra. Á síðasta ári tapaði hann málaferlum um að fá reglubundna lögregluvernd á meðan hann dvelur í Bretlandi. Vill sættast Harry prins sagði BBC í kjölfar úrskurðarins frá ósk sinni um að sættast við konungsfjölskylduna. Hann sagðist einnig hafa áhyggjur af því að það yrði ekki óhætt að koma með eiginkonu sína og börn aftur til heimalands síns. „Ég sé ekki fyrir mér heim þar sem ég myndi koma með eiginkonu mína og börn aftur til Bretlands á þessum tímapunkti og það sem þau munu missa af er, tja, allt,“ sagði hann. „Þú veist að ég elska landið mitt, ég hef alltaf gert það þrátt fyrir það sem sumir í landinu hafa gert.“ Samkvæmt frétt BBC verður endanleg ákvörðun um ferðina og þátttöku eiginkonu og barna Harrys prins tekin á næstu dögum.
Bretland Kóngafólk Bandaríkin Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira