Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Smári Jökull Jónsson skrifar 26. júní 2026 13:01 Ágúst Ingi Ágústsson er yfirlæknir hjá Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Vilhelm Yfirlæknir hjá samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana segir að fella þurfi þröskulda og auka traust á kerfum meðal erlendra kvenna hér á landi svo auka megi þátttöku þeirra í krabbameinsskimunum. Aðeins 25% kvenna með erlent ríkisfang mættu í boðaða skimun fyrir brjóstakrabbameini á síðasta ári.
Í skýrslu embættis landlæknis um skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbamein kemur fram að þátttaka í skimun fyrir brjóstakrabbameini hefur aukist um þrettán prósentustig á síðustu þremur árum og þátttaka í skimun fyrir leghálskrabbameini einnig aukist. Yfirlæknir hjá Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana segir að helsta áskorunin sé að ná til erlendra kvenna en aðeins fjörðungur kvenna með erlent ríkisfang mætti í boðaða skimun fyrir brjóstakrabbameini. „Það er mjög flókið að ná til innflytjenda, það er erfiðara að ná til þeirra með upplýsingar til dæmis. Það eru tungumálaerfiðleikar, það er menningarmunur og það er munur á trausti til stofnana,“ segir Ágúst Ingi Ágústsson yfirlæknir. Færri koma í óþarfa endurkomu Erlendar konur treysti heilbrigðiskerfi í sínu heimalandi oft á tíðum betur. „Þetta snýst svolítið um það að það fella niður þröskulda sem tengjast tungumáli og síðan að auka traust á kerfunum hjá okkur.“ Bókunaraðferðir séu meðal þess sem hindrað geti aðgengi. „Þær eiga erfitt með að bóka sér vegna þess að þær eiga erfitt með að hafa samskipti í gegnum síma, sem dæmi. ef það er hægt að bjóða upp á rafrænar bókarnir þá er það strax til bóta, en þá þurfa upplýsingarnar líka að vera á tungumáli sem þær skilja.“ Í skýrslunni kemur fram að hlutfall endurinköllunar eftir fyrstu skimun hafi meira en helmingast frá 2021. Ágúst segir þetta skýrast af bættri tækni og greiningarviðmiðum. „Það sem má segja að áður var oft verið að innkalla konur í eftirlit sem var kannski óþarft, núna er verið að reyna að afgreiða konurnar þannig að þær fái bara svar, annað hvort er eitthvað eðlilegt eða ekki.“ Ungar konur telji sig ekki í hættu Ágúst segir að almennt séum við að standa okkur vel í þessum málum. Mikill fókus hafi verið á þátttökuna síðustu ár og hún sé á uppleið. „Það er kannski erfitt að gera sér væntingar um betri þátttöku íslenskra kvenna,“ en þó sé það ákveðin áskorun að ná til yngri kvenna. Það sé þekkt um allan heim. „Þær eru auðvitað ungar og telja þar af leiðandi að þær séu ekki í mikili hættu á að fá krabbamein og því ekki eins mikil þörf á að þær mæti. Í einhverjum tilfellum snýst þetta kannski um fjárútlát en sem betur fer þá er kostnaður hér á landi hverfandi, aðeins um 500 krónur fyrir að mæta í skimun.“
Krabbamein Heilbrigðismál Heilsugæsla Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira