Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. júní 2026 11:43 Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands fullyrðir að enginn markaður sé fyrir kjötið sem nú er verið að veiða. Vísir/Vilhelm Fleiri eru andvígir veiðum á langreyðum en hlynntir samkvæmt nýrri könnun. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir stórskrýtið að stjórnvöld hafi ekki lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar og vonar að því verði breytt sem fyrst.
Um 41% eru andvíg veiðunum samkvæmt könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands en 33% fylgjandi þeim. Þá eru karlar hlynntari veiðunum en konur og eldra fólk vill frekar leyfa þær en yngra. Ef litið er til stjórnmálaskoðana má sjá í niðurstöðunum að þau sem eru hlynntust veiðunum eru þau sem kjósa Miðflokkinn. Myndir úr Hvalfirði: Langreyðar dregnar á land Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir veiðarnar tímaskekkju og að breyta þurfi lögum svo hægt sé að stöðva þær. „Það er bara stórskrýtið að stjórnvöld á Íslandi hafi ekki lagaleg tæki til að stöðva þessar veiðar. Lögin um hvalveiðar eru frá árinu 1947, ef ég man rétt, og hefur eiginlega ekki verið breytt síðan, þrátt fyrir allt, og það þarf bara að gera gangskör í því að breyta þessum lögum þannig að það sé hægt að friðlýsa hvali og vernda. Þetta er í rauninni fyrst og fremst spurning um langreyðar, sem sagt þá hvalategund sem Kristján Loftsson sækist eftir að veiða. Það hefur komið fram að atvinnuvegaráðherra ætli að setja lög sem geti heimilað ráðherranum eða ríkisstjórninni að banna þessar veiðar og ég vona að það verði sem fyrst. Þetta gagnast okkur ekki á nokkurn hátt.“ Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hann segir markaðinn fyrir kjötið sem nú er verið að veiða lítinn. „Nú síðast var hann að biðja um að fá að selja mjöl, hvalamjöl og hvalalýsi til fæðu fyrir dýr, hvort það er laxeldi eða svínabú, ég veit það ekki, en segir bara hvað hann á erfitt með að koma þessu í verð. Við vitum að markaðurinn í Japan er mjög lítill og japanskir hvalveiðimenn vilja sitja að honum einir. Ef við gerum ráð fyrir að það takist að veiða hundrað og sextán langreyðar eins og leyft er hérna austan við landið, þá er það nær því hið sama magn og eftirspurnin er í Japan, tvö þúsund tonn eða eitthvað slíkt. Þannig að það er enginn markaður, þetta er tilgangslaust.“
Hvalir Hvalveiðar Dýr Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir ónákvæmt svar um fundi án Harðar Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Sjá meira