Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 06:01 Starfsmaður á bílasýningu dustar af Chevrolet Silverado. Á myndinni sést vel hvernig framendi bílsins nær starfsmanninum vel upp á bringu. Vísir/EPA Fjölgun jeppa og pallbíla í umferðinni er talin hafa leitt til allt að fjögur hundruð dauðsfalla gangandi vegfarenda í Bandaríkjunum á ári undanfarinn aldarfjórðung. Hátt húdd slíkra bíla og stærri blindsvæði auka hættuna á mannskæðum slysum.
Banaslysum þar sem gangandi vegfarendur létu lífið fækkaði söðugt í Bandaríkjunum eins og víða annars staðar á síðari hluta síðustu aldar og í byrjun þessarar. Þróunin snerist aftur á móti við upp úr 2009 og árlegum banaslysunum fjölgað um 75 prósent frá því að þau voru fæst. Á sama tíma hafa bílar í umferðinni stækkað umtalsvert með vaxandi vinsældum jeppa, jepplinga og stórra pallbíla. Þeir voru orðnir fleiri í umferðinni en hefðbundnir fólksbílar strax á öðrum áratug aldarinnar. Greining sem New York Times vann leiddi í ljós að þessi fjölgun stórra pallbíla og jeppa sé stór breyta í fjölgun dauðsfalla gangandi vegfarenda frá aldamótum. Áætlar blaðið að tvö hundruð til fjögur hundruð fleiri dauðsföll hafi orðið á hverju ári en ef stærð bifreiða í umferðinni hefði haldist tiltölulega óbreytt. Það nemur um tíu prósentum af fjölgun banaslysa gangandi vegfarenda. Líklegri til þess að verða undir stærri bílum Ástæðurnar sem skýra hvers vegna stærri bílar leiða til fleiri látinna gangandi vegfarenda segir blaðið tvær. Annars vegar séu húdd þessara bíla mun hærri en venjulegra fólksbíla og hins vegar séu blindsvæði ökumanna í þeim að jafnaði stærri en í minni bílum. Háir framendar þessara bíla eru líklegri til þess að valda dauða gangandi fólks. Í stað þess að kastast upp á vélarhlífina í árekstri við fólksbíl er árekstur við stóran pallbíl líklegri til þess valdi höggi á brjóstkassa manneskju og fella hana í götuna. Þar verður gangandi vegfarandi líklegri til þess að verða undir bifreiðinni og hljóta bana af. „Við sjáum mikið af hræðilegum árekstrum jafnal á litlum hraða vegna þess að gangandi vegfarandi kastast áfram. Áður en ökumaðurinn veit hvað gerðist er höfuð vegfarandans komið undir hjólið,“ segir Shawn Harrington, eigandi fyrirækis sem gerði árekstursprófanir fyrir greiningu New York Times. Þá áætlar blaðið að blindsvæði í vinsælum pallbílum hafi í sumum tifellum orðið tvöfalt stærra en á 10. áratug síðustu aldar eða 1. áratug þessarar. Varað við en ekkert gert Sérfræðingar á vegum bandarísku alríkisstjórnarinnar vöruðu eftirlitsstofnanir við hættunni á að stærri bílar ógnuðu öryggi gangandi vegfarenda árið 2022 en þeir töluðu fyrir daufum eyrum. Blaðið segir að yfirvöld hafi lítið skeytt um stækkun bíla á götum Bandaríkjanna. Talsmenn bílaframleiðenda kenna öðru en stærri bílum um fjölgun banaslysa, þar á meðal hönnun vega. Þá telja þeir að ný tækni eins og árekstursskynjarar og sjálfvirkur hemlunarbúnaður fækki slysum. Blaðið bendir þó á að framleiðendurnir vari sjálfir viðskiptavini sína við því að slík öryggistækni geti brugðist við alls kyns aðstæður, þar á meðal í vondu veðri, ökutækið er á miklum hraða og ef gangandi vegfarandi er á hlaupum, ýtir barnavagni á undan sér, beygir sig eða er á stærð við lítið barn.
Bílar Samgönguslys Bandaríkin Umferðaröryggi Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fleiri fréttir Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Sjá meira