Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar 25. júní 2026 12:02 Við þinglok 2026 náðist mikilvægur áfangi í réttindabaráttu eldra fólks þegar Alþingi samþykkti einróma frumvarp Nönnu M. Gunnlaugsdóttur og meðflutningsmanna hennar um breytingar á gildistíma ökuskírteina eldri ökumanna. Með lagabreytingunni er komið til móts við kröfur sem eldri borgarar hafa lengi sett fram um sanngjarnari og nútímalegri reglur um endurnýjun ökuskírteina. Fram til þessa hafa reglurnar verið þannig að eftir 70 ára aldur hefur gildistími ökuskírteina styst verulega. Við 70 ára aldur hefur ökuskírteini gilt í fjögur ár, við 74 ára aldur í tvö ár og eftir 80 ára aldur hefur þurft að endurnýja það á hverju ári. Jafnframt hafa margir þurft að afla læknisvottorða reglulega með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn. Samkvæmt nýju lögunum verða reglurnar mun einfaldari og sanngjarnari. Frá 70 til 79 ára aldurs mun ökuskírteini gilda í 10 ár, frá 80 til 89 ára aldurs í 5 ár og frá 90 ára aldri í 1 ár. Auk þess verður almennt ekki krafist læknisvottorðs fyrr en við 75 ára aldur, í stað 65 ára áður. Til að setja breytinguna í samhengi má nefna að einstaklingur sem nær 70 ára aldri getur samkvæmt nýju reglunum þurft að endurnýja ökuskírteini sitt aðeins tvisvar á næstu tuttugu árum, í stað fjórtán skipta samkvæmt eldra kerfinu. Það er gríðarleg breyting sem mun auðvelda líf þúsunda eldri borgara. Ávinningurinn er margþættur. Í fyrsta lagi fækkar þeim sem þurfa að leita til lækna eingöngu vegna endurnýjunar ökuskírteina. Það sparar einstaklingunum bæði tíma og peninga og dregur um leið úr álagi á heilsugæsluna. Í öðru lagi sparast fjármunir í stjórnsýslunni þar sem færri umsóknir, færri vottorð og færri afgreiðslur þurfa að eiga sér stað. Ekki síður skiptir máli sá andlegi ávinningur sem breytingin hefur í för með sér. Margir eldri borgarar hafa upplifað reglulegar endurnýjanir sem óþarfa áhyggjuefni og jafnvel ákveðna tortryggni gagnvart hæfni þeirra. Með nýju reglunum er verið að sýna eldri borgurum aukið traust og viðurkenna að fólk lifir lengur, býr við betri heilsu og heldur virkni sinni mun lengur en áður var talið. Sérstakar þakkir eiga Nanna M. Gunnlaugsdóttir og meðflutningsmenn hennar skildar fyrir að hafa lagt fram frumvarpið og fylgt því eftir af festu og þrautseigju. Málið hefur verið á dagskrá um nokkurt skeið og ekki sjálfgefið að slíkar breytingar nái fram að ganga. Barátta þeirra sýnir hversu miklu skiptir að hafa kjörna fulltrúa sem eru tilbúnir að hlusta á rök og vinna að raunverulegum umbótum. Þá eiga allir þingmenn Alþingis hrós skilið fyrir að hafa samþykkt frumvarpið einróma. Það sýnir að þegar um er að ræða skynsamleg réttlætismál sem bæta líf fólks er hægt að ná samstöðu þvert á flokkslínur. Fyrir Landssamband eldri borgara er þetta stór áfangi. Samtökin hafa um árabil barist fyrir breytingum á þessum reglum og bent á að þær væru úr takti við breyttar aðstæður og bætta heilsu eldri kynslóða. Nú hefur enn eitt mikilvægt baráttumál eldra fólks náð í höfn. Þessi árangur sýnir að þegar samtökin tala af festu og með skýra sýn er hægt að hafa áhrif á löggjöf og bæta kjör og réttindi eldra fólks um allt land. Þessi lagabreyting er því miklu meira en breyting á gildistíma ökuskírteina. Hún er tákn um aukna virðingu fyrir eldra fólki, aukið sjálfstæði þess og betri lífsgæði. Hún sýnir að markviss og samstillt barátta skilar árangri og er enn einn sigurinn í þeirri vegferð að gera Ísland að betra samfélagi fyrir eldri borgara. Um leið er hún hvatning til að halda áfram og ljúka næstu mikilvægu verkefnum, þar á meðal að tryggja eldri borgurum öflugan og sjálfstæðan málsvara í formi Umboðsmanns aldraðra. Höfundur er formaður Landssambands eldri borgara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Snæbjörnsson Eldri borgarar Bílar Bílpróf Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Skoðun Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar