Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni Aron Guðmundsson skrifar 24. júní 2026 09:16 Eiður Smári Guðjohnsen á sínum tíma á hliðarlínunni sem þjálfari FH. Vísir/Diego Það er ekki efst í huga hjá Eiði Smára Guðjohnsen að snúa aftur í þjálfun núna. Hann hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Val og segir það kitla að snúa aftur í þjálfun á einhverjum tímapunkti.
Eiður Smári hefur hlotið verðuskuldað lof fyrir starf sitt sem bæði sérfræðingur og lýsandi í kringum útsendingar RÚV frá HM í fótbolta sem nú stendur yfir. Í viðtali í Bítinu á Bylgjunni á morgun var Eiður Smári mættur til þess að tala um HM sem og fótboltann í heild sinni og undir lok viðtalsins var borinn undir hann orðrómur sem hefur verið á kreiki upp á síðkastið þess efnis að hann gæti orðið næsti þjálfari karlaliðs Vals í Bestu deildinni. Í Innkastinu á Fótbolti.net í fyrradag sagðist blaðamaðurinn Elvar Geir Magnússon hafa heyrt það á stuðningsmönnum Vals að efasemdarröddum væri að fjölga varðandi samstarf Vals og núverandi þjálfara liðsins Hermann Hreiðarsson. Nafn Eiðs Smára hafi komið til umræðu hjá Val fari svo að gerðar verði breytingar á þjálfarateyminu. Sigmar Vilhjálmsson, annar af umsjónarmönnum Bítisins í morgun, spurði Eið Smára hreint út hvort það væri einhverjar líkur á því að hann myndi mögulega taka við Val. Eiður byrjaði á því að hlæja áður en hann kom sér að spurningu Sigmars: „Ég hélt þú ætlaðir að fara spyrja mig út í einhverja taktík í leikjum kvöldsins. Hvort ég væri undirbúinn fyrir kvöldið,“ svaraði Eiður og hélt svo áfram: „Það er ekki efst í huga núna. Auðvitað kitlar að fara í þjálfun. Ég elska að þjálfa, elska að vera úti á velli. En mér finnst ekkert sérstaklega gaman að mæta í svona umhverfi vikulega. Þurfa að svara fyrir það hvort hlutirnir séu að ganga upp eða ekki.“ Valur vermir sem stendur 5. sæti Bestu deildar karla og er með 16 stig eftir 12 leiki. Tólf stigum frá KR sem vermir annað sætið og átján stigum frá toppliði Víkings Reykjavíkur. Liðið er á sínu fyrsta tímabili undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar. Viðtalið við Eið Smára Guðjohnsen í Bítinu á Bylgjunni í morgun má hlusta á í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Valur HM 2026 í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Sjá meira