Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 21. júní 2026 08:02 Hér áður fyrr töluðu ESB-sinnar ákaft fyrir því að við gengjum í Evrópusambandið til þess að hafa þar áhrif. Nú er línan sú að við eigum að verða aðildarríki til að fá „sæti við borðið“. En hvað þýðir sú lína? Og hverjir munu koma til með að sitja við þetta borð? Völd í ESB eru í samræmi við íbúafjölda Áhrif ESB-ríkja ráðast fyrst og fremst af íbúafjölda þeirra. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið yrði það fámennasta ríkið og það áhrifaminnsta. Af 726 þingmönnum Evrópuþingsins fengjum við 6 þingmenn (Þýskaland hefur 96). Í ráðherraráðinu fengjum við einn málefnaráðherra og í framkvæmdastjórninni sömuleiðis einn fulltrúa eins og önnur ESB-ríki. Það sem sjaldnast fylgir þó með er að langstærstur hluti ákvarðana ESB, á þinginu, ráðinu og í framkvæmdastjórninni, eru meirihlutaákvarðanir og vægi fulltrúa eftir íbúafjölda. Ísland hefði 0,08% af heildaríbúafjölda ESB og ætti því mikið verk fyrir höndum hverju sinni að fá ríki til liðs við sig að verja eigin hagsmuni. Þess fyrir utan er fulltrúi ESB-ríkja í framkvæmdastjórn aðeins embættismaður sambandsins sem má ekki gæta hagsmuna heimaríkisins. Neitunarvald er auk þess afar sjaldgæft og varðar örfá grundvallaratriði eins og stækkun sambandsins, ekki t.d. orku- eða sjávarútvegsmál. Það er öllum ljóst að fjölmennustu ríki ESB ráða þar ríkjum, það er beinlínis skrifað út í uppbyggingu sambandsins. Þannig verða fámenn ríki oft og iðulega undir í ákvarðanatöku. Hverjir eru spenntastir fyrir „sætunum við borðið“? En af hverju eru sumir Íslendingar svo yfir sig spenntir fyrir sætunum „við borð“ Evrópusambandsins? Þar hafa ýmsir stjórnmálamenn, fræðimenn og fjölmiðlamenn verið fremstir í flokki, auk embættismanna sem hafa barist ötullega fyrir inngöngu Íslands í ESB. Íslenskir stjórnmálamenn hafa augljósa sérhagsmuni af inngöngu Íslands í ESB enda bættust þar við fjölmörg atvinnutækifæri til viðbótar við innanlandsstjórnmálin. Starfskjör Evrópuþingmanna teljast mjög góð, enda fá þeir mikil fríðindi til viðbótar mánaðarlaunum sínum, m.a. himinháar starfskostnaðargreiðslur og aðstoðarmenn á launum. Íslenskir ráðherrar fengju síðan að sitja við „borð“ ráðherraráðsins og í framkvæmdastjórn sitja hæst launuðu og valdamestu embættismenn ESB. Þeir fulltrúar eru gjarnan fyrrum ráðherrar, þingmenn eða háttsettir embættismenn. Og til að toppa þetta greiða embættismennirnir skatta sína til ESB. 60 þúsund ESB-starfsmenn Embættismannakerfi ESB telur síðan allt að 60 þúsund starfsmenn í kjarnastofnunum (að ótöldum stjórnmálamönnum). Þegar allt er talið með (m.a. sérstofnanir og utanríkisþjónusta) er heildarfjöldinn yfir 70 þúsund starfsmenn. Þetta er þó aðeins toppurinn á ísjakanum þar sem langflestir þeirra sem starfa að framgangi ákvarðana og stefnumála ESB eru á launum hjá aðildarríkjunum. Rík áhersla er lögð á að starfsfólk komi frá öllum aðildarríkjum ESB og því augljóslega mikil atvinnutækifæri fyrir fólk með ákveðinn bakgrunn og menntun á Íslandi, ekki síst fyrir embættismenn. Fjölmörg tækifæri fyrir sérfræðinga og embættismenn Við aðild að ESB verður fastafulltrúi ríkisins gagnvart ESB (sambærilegur sendiherra okkar í Brussel sem er nú Stefán Haukur Jóhannesson) einn mikilvægasti embættismaður landsins í alþjóðamálum. Fastafulltrúarnir/sendiherrarnir undirbúa ráðherraráðið og þeir fara þannig með mjög mikil völd. Við þyrftum að auka viðveru í Brussel verulega svo að þar væru einnig mikil tækifæri fyrir sérfræðinga og embættismenn. Það heyrist enda gjarnan frá starfsmönnum utanríkisþjónustunnar að þeim finnst þeir utanveltu þegar kemur að málefnum ESB; þeir vilja sitja við borðið. Störfum á alþjóðavettvangi og í alþjóðastofnunum fylgja fundir með mikilvægum erlendum aðilum, ferðalög, boð í móttökur, kvöldverði og á opinbera viðburði – aðgangur að öflugu tengslaneti. Sætin/embættin eru því skiljanlega eftirsótt af ákveðnum hópum. Að endingu er það þó auðvitað almenningur í aðildarríkjunum sem greiðir fyrir þessa gríðarlegu stækkun stjórnsýslu og fjölgun embættismanna sem kemur til viðbótar innlendri stjórnsýslu. Það er s.s. ekki að ástæðulausu að ég hef lagt fram frumvarp um auknar varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá þeim sem sinna hagsmunagæslu fyrir hönd Íslands í samningaviðræðum við erlenda aðila á borð við ESB (https://www.althingi.is/altext/157/s/0328.html). Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar