Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Eiður Þór Árnason skrifar 16. júní 2026 10:26 Elísa hefur starfað lengi innan samstæðu Eimskips. Vísir/Anton Brink Elísa Dögg Moraitis Björnsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Sviðinu tilheyra innanlandsflutningar og vörudreifing, vöruhúsa- og frystigeymslustarfsemi ásamt fasteignaumsjón. Elísa tekur formlega við starfinu af Eddu Rut Björnsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra, á næstu vikum.
Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphallar en Elísa hefur starfað hjá TVG-Zimsen, dótturfélagi Eimskips, frá árinu 2006 og hóf störf sem fulltrúi í söludeild. Á árunum 2010 til 2013 leiddi hún deild sértækra lausna á sviði sjóflutninga og starfaði hún sem deildarstjóri sjó- og flugdeildar á árunum 2013 til 2020. Hún hefur svo verið framkvæmdastjóri TVG-Zimsen frá árinu 2020. Elísa er sömuleiðis stjórnarformaður North Atlantic Agency, samstarfsvettvangs umboðsmennsku- og flutningafyrirtækja í Norður-Atlantshafi og situr í stjórnum Eimskip Greenland og Gáru ehf., dótturfélaga Eimskips. Jafnframt kemur fram í tilkynningu að hún sé með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í hagfræði með áherslu á fjármálahagfræði og hagrannsóknir frá University of Sydney í Ástralíu. Elísa er gift Jannis Moraitis og á þrjú börn, auk þriggja stjúpbarna. Vísir tók Elísu í kaffispjall árið 2025 þegar hún var enn framkvæmdastjóri TVG-Zimsen. Ánægjulegt og spennandi „Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar Elísu, sem hún hefur sýnt sem framkvæmdastjóri TVG-Zimsen síðustu sex ár, munu skipta máli á sviði sem telur hátt í 400 starfsfólk og er með jafn fjölbreyttan rekstur og raun ber vitni. Fram undan eru spennandi verkefni á innanlandssviðinu og ég hlakka til að vinna með Elísu í nýju hlutverki,“ er haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni, forstjóra Eimskips. „Ég hlakka til að taka við nýju hlutverki og er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt. Eimskip býr yfir öflugri starfsemi og framúrskarandi starfsfólki um allt land. Það verður bæði ánægjulegt og spennandi að takast á við fjölbreytt verkefni hjá Eimskip Innanlands og kynnast starfseminni enn betur,“ er haft eftir Elísu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eimskip Vistaskipti Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira