Viðskipti erlent

Olíu­verð lækkar eftir fregnir af sam­komu­lagi

Kjartan Kjartansson skrifar
Olíutankar í Þýskalandi. Verð á olíu hefur verið afar sveiflukennt frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust með vopnum á Íran í vetur.
Olíutankar í Þýskalandi. Verð á olíu hefur verið afar sveiflukennt frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust með vopnum á Íran í vetur. Vísir/EPA

Verð á olíu lækkaði þegar markaðir í Asíu opnuðu í nótt eftir að tilkynnt var um að Bandaríkjastjórn og klerkastjórnin í Íran hefðu náð samkomulagi um að opna Hormússund. Töluverð óvissa ríkir þó enn um hvað samkomulagið felur í sér og hvort það haldi.

Hráolía úr Norðursjó lækkaði um 4,3 prósent en bandarísk um 4,9 prósent, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur tekið miklum sveiflum á undanförnum mánuðum frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran og Íranir brugðust við með því að ráðast á skip á Hormússundi, einni helstu flutningaskipaleið heimsins með olíu.

Stjórnvöld í Pakistan tilkynntu í gærkvöldi að þau hefðu haft milligöngu um samkomulag á milli Bandaríkjamanna og Írana. Skrifa eigi undir samkomulagið við formlega athöfn í Sviss á föstudag.

Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í kjölfarið að olían ætti eftir að „flæða aftur“. Hann hefur þó ekki verið áreiðanlegasti sögumaðurinn um stöðu viðræðna við Írana.

Sérfræðingar segja að jafnvel þótt samkomulagið haldi komist olíuflutningar um sundið ekki strax aftur á fullan skrið. Fyrst þurfti að hreinsa neðansjávarsprengjur sem Íranir komu fyrir en það gæti tekið allt frá nokkrum vikum upp í hálft ár.

Áður en stríðsbrölt Bandaríkjamanna og Ísraela hófst í febrúar gekk tunnan á Norðursjávarolíu kaupum og sölum fyrir um sjötíu dollara. Verðið náði hæst 120 dollurum á tunnu en er nú rúmlega áttatíu dollarar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×