Handbolti

Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson er fjórfaldur meistari á sínu fyrsta tímabili með Barcelona.
Viktor Gísli Hallgrímsson er fjórfaldur meistari á sínu fyrsta tímabili með Barcelona. Getty/Sanjin Strukic

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Barcelona tryggðu sér sigur í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld eftir sannfærandi sigur á þýska liðinu Füchse Berlin.

Barcelona vann leikinn á endanum með þriggja marka mun, 37-34, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 20-16.

Barcelona bætti með þessu við met sitt en þetta er í þrettánda sinn sem félagið vinnur þessa keppni, þar af í annað sinn á þremur árum og í fjórða skiptið frá árinu 2021.

Viktor Gísli sat lengst af á bekknum en danski markvörðurinn Emil Nielsen varði fjórtán skot og 34 prósent skota sem hann reyndi við. Viktor náði aðeins að verja eitt af þeim átta skotum sem hann reyndi við.

Luís Frade var markahæstur hjá Barcelona með sjö mörk en Aleix Gómez skoraði sex mörk eins og Blaz Janc. Gómez var að vinna Meistaradeildina í fjórða sinn á ferlinum.

Börsungar vinna þar með fjórfalt á þessu tímabili en liðið vann einnig spænsku deildina, spænska bikarinn og spænska deildarbikarinn. Frábært fyrsta tímabil hjá Viktori Gísla hjá Barcelona.

Mathias Gidsel og félagar í Füchse Berlin töpuðu aftur á móti úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað árið í röð. Gidsel skoraði bara tvö mörk í fyrri hálfleik en endaði með átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×