Jökull rekinn frá Stjörnunni Sindri Sverrisson skrifar 12. júní 2026 20:20 Jökull Elísabetarson tók við sem aðalþjálfari Stjörnunnar árið 2023. vísir/Diego Forráðamenn Stjörnunnar hafa tekið þá ákvörðun að segja Jökli Elísabetarsyni upp störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins í fótbolta.
Jökull tók við starfinu í maí fyrir þremur árum, eftir að hafa verið aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar sem þá var rekinn. Knattspyrnudeild Stjörnunnar sendi frá sér tilkynningu í kvöld þar sem kemur fram að deildin og Jökull I. Elísabetarson hafi komist að samkomulagi um starfslok Jökuls sem þjálfari meistaraflokks karla. Undir stjórn Jökuls hafnaði Stjarnan í 3. sæti árið 2023 og í 4. sæti árið 2024. Liðið hafnaði svo aftur í 3. sæti á síðustu leiktíð, eftir að hafa um tíma verið í baráttu um titilinn en svo endað án sigurs í öllum fimm umferðunum eftir skiptingu deildarinnar um haustið. Í sumar hefur gengið svo verið afleitt hjá Stjörnumönnum sem eru aðeins með 10 stig eftir 10 leiki, í 9. sæti Bestu deildarinnar, þrátt fyrir 2-1 útisigur gegn Þór á Akureyri í síðasta deildarleik. Síðasti naglinn í kistu Jökuls reyndist svo 3-1 tap gegn Aftureldingu, næstefsta liði Lengjudeildarinnar, í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á miðvikudaginn. Það tap dró enn úr vonum Stjörnumanna um að ná aftur Evrópusæti á þessari leiktíð en þeir spila í undankeppni Sambandsdeildarinnar í sumar vegna árangursins í fyrra. „Jökull hefur tekið mikinn þátt í velgengni knattspyrnudeildar síðastliðin ár og hjálpað mörgum ungum leikmönnum að bæta sinn leik og komast erlendis í atvinnumennsku. Jökull hefur ávallt sinnt sínum störfum fyrir félagið af miklum metnaði og dugnaði og unnið ómetanlegt starf fyrir Stjörnuna. Við óskum Jökli og hans fólki alls hins besta og velfarnaðar í framtíðinni,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar. Á vef Fótbolta.net segir að sögusagnir séu um að Skagamaðurinn Jón Þór Hauksson, sem síðast var aðalþjálfari hjá Vestra í lok síðustu leiktíðar, sé líklegur arftaki Jökuls. Jón Þór var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar árið 2018 en hætti til að taka við kvennalandsliðinu.
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira