Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. júní 2026 14:28 Sæþór Benjamín Randalsson, nýkjörinn varaformaður Sósíalistaflokksins, til vinstri og Jón Ferdínand Estherarson, nýkjörinn formaður Sósíalistaflokks Íslands, til hægri. Samsett Nýkjörinn formaður Sósíalistaflokksins segir framkvæmdastjórn flokksins hafa tekið ákvörðun um að skrá félaga úr flokknum. Þeir sem vinni gegn flokknum eigi ekkert erindi á aðalfund. Varaformaður segir stjórnina hafa fylgt flokksreglum við skipulagningu aðalfundar. Það sé ekki þeirra vandamál að upplýsa fólk um að það hafi verið rekið úr flokknum.
Sæþór Benjamín Randalsson, nýkjörinn varaformaður Sósíalistaflokksins, segir í samtali við Vísi að framkvæmdastjórn flokksins hafa framfylgt flokksreglum við skipulagningu aðalfundar flokksins sem var haldinn í Þingeyjarsveit um helgina. Sæþór segir skráningarform fyrir aðalfund Sósíalistaflokksins hafa borist skráðum félögum flokksins í tölvupósti tveimur vikum fyrir fund og ítrekar að framkvæmdastjórn hafi fylgt flokkslögum við boðun á fundinn. Framkvæmd fundarins hefur sætt gagnrýni frá aðilum sem segjast ekki hafa fengið boð á hann þrátt fyrir að vera skráðir félagar. Tólf félagar í flokknum segjast hafa kært aðalfundinn til Fyrirtækjaskrár. Sara Stef. Hildardóttir, ein þeirra sem standa fyrir andmælunum, segir þetta vera brot á félagalögum í samtali við Vísi. Sæþór segir allar upplýsingar um viðburði flokksins berast með pósti, þar á meðal aðalfund. „Ég get staðfest að ég sendi á alla félaga,“ segir hann. Hann segir 60 manns hafa sótt fundinn um helgina sem var haldinn að Stórutjarnarskóla, 25 kílómetrum austur af Akureyri. Aðspurður hvers vegna fundurinn hafi verið haldinn þar segir hann meðal annars kosningaloforð nýrrar forystu hafa verið að setja landsbyggðina í forgang. Hugmyndin sé að aðalfundirnir verði haldnir annað hvert ár á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu á móti. Í tilkynningu frá Jóni Ferdínandi Estherarsyni, nýkjörnum formanni Sósíalistaflokks Íslands, vísar hann öllum ásökunum á bug. Jón segir jafnframt í samtali við Vísi að með hegðun sinni hafi ákveðnir aðilar lýst því yfir að þau væru ekki lengur félagar í flokknum. Hann segir fólk sem vinni með yfirlýstum hætti gegn flokknum og grafi undan honum eiga ekkert tilkall til þess að mæta á aðalfund flokksins. „Eins og gefur að skilja og er öllum morgunaugljóst þá gengur það ekki upp að fólk sem býður sig fram gegn Sósíalistaflokknum með öðru framboði, gegnir trúnaðarstörfum fyrir framboð sem býður fram gegn Sósíalistaflokknum og með mjög opnum og alvarlegum hætti grefur undan flokknum, hendir flokknum út úr eigin húsnæði og vinnur með ráðum og dáðum og með opinberlega yfirlýstum hætti að því að granda Sósíalistaflokknum, að það fólk sé áfram félagar í flokknum. Það er augljós hagsmunaárekstur. Í öllum eðlilegum stjórnmálaflokkum gilda lög og reglur gegn slíku,“ segir hann. Hann vísar til þess að Sara Stef. Hildardóttir, ein þeirra sem gagnrýna fundinn, hafi komið að stofnun framboðanna Vor til Vinstri og Vinstrið fyrr á árinu, ásamt Sönnu Magdalenu Mögdudóttur, borgarfulltrúa og fyrrum félaga Sósíalistaflokksins. „Þætti einhverjum eðlilegt að Guðrún Hafsteinsdóttir myndi kæra landsfund Samfylkingarinnar ef hún fengi ekki að vera þátttakandi í honum? Ætti Sigmundur Davíð enn að fá að mæta á flokksþing Framsóknarflokksins? Er Þorgerður Katrín enn höfð með í ráðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins?“ spyr hann í tilkynningunni. Ákvörðun tekin fyrir hönd ákveðinna aðila Ákvörðun segir hann hafa verið tekna fyrir þeirra hönd í framkvæmdastjórn flokksins að taka þau af félagatalinu. Aðspurður hvort það þurfi að upplýsa fólk um að það sé rekið úr flokknum svarar hann neitandi. „Það er bara ekki okkar vandamál,“ segir hann. „Í rauninni var það bara þannig að samkvæmt stjórn, sem setti bara eðlilega reglu í ljósi aðstæðna, að fólk sem væri að vinna með þessum hætti í andstöðu gegn Sósíalistaflokknum, að grafa undan honum, þá bara værirðu með því að segja að þú sért ekki lengur félagi í flokknum. Þú sért að afskrá þig, það sé bara mjög eðlilegt í öllum skilningi að líta þannig á,“ segir nýkjörni formaðurinn. Jón segir ekkert erindi hafa borist flokknum frá Fyrirtækjanefnd eða lögfræðingum.
Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira