Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Lovísa Arnardóttir skrifar 10. júní 2026 09:08 Í skýrslunni kemur fram að ofbeldisfullum mótmælum hafi fækkað og því hafi friðarstuðull Íslands hækkað frá fyrra ári. Vísir/Vilhelm Ísland er nítjánda árið í röð friðsælasta land heims samkvæmt greiningu áströlsku stofnunarinnar Institute for Economics and Peace, IEP. Stofnunin hefur gefið út frá árinu 2007 skýrslu þar sem hún greinir friðsælustu ríki heims og þau ríki þar sem mestur ófriður ríkir.
Á eftir Íslandi eru Nýja-Sjáland, Sviss, Slóvenía og Írland. Rússland er það land þar sem mestur ófriður er en Súdan, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Úkraína og Ísrael eru í fimm neðstu sætunum. Í skýrslu IEP kemur fram að Vestur- og Mið-Evrópa sé áfram friðsælasta svæði heims samkvæmt heimsfriðarvísitölunni 2026. Ástandið versnaði í tuttugu og tveimur af 33 löndum svæðisins, batnaði í tíu og stóð í stað í einu. Mesta afturförin varð á sviði hervæðingar, eða um 2,5 prósent, sem skýrist af almennri aukningu varnarútgjalda á svæðinu þar sem evrópsk NATO-ríki juku útgjöld sín um 20 prósent að raunvirði árið 2025. Þrátt fyrir afturförina eru sjö af 10 friðsælustu löndum heims á svæðinu, þar sem Ísland er í fyrsta sæti á heimsvísu. Samkvæmt skýrslunni jókst friður á Íslandi um tvö prósent á síðasta ári. Á sviði öryggis og almannavarna batnaði ástandið um fjögur prósent, sem skýrist af 42,9 prósenta bata á vísitölu ofbeldisfullra mótmæla. Á sviði yfirstandandi átaka varð engin breyting og á sviði hervæðingar batnaði ástandið lítillega, eða um 0,3 prósent. Í skýrslunni segir að sérstaða Íslands byggist á því að hér er enginn fastur her, mjög lág tíðni glæpa og sterk félagsleg samheldni. Ísland er því með töluverðum mun friðsælasta land í heimi. Meiri ófriður í 119 löndum Í samantekt skýrslunnar kemur fram að um sé að ræða tólfta árið í röð sem friður í heiminum minnkar. Á síðasta ári versnaði ástandið í 99 löndum en batnaði í 62 og eru samkvæmt skýrslunni nú 119 lönd í heiminum sem eru minna friðsöm en þau voru árið 2008. Átök hafa verið helsta orsök afturfararinnar. Þar kemur einnig fram að í fyrra hafi verið tuttugu lönd þar sem yfir þúsund manns létust í innri átökum, sem er hæsta tala frá upphafi heimsfriðarvísitölunnar, og í 18 öðrum löndum létust yfir hundrað manns á síðasta ári. Ástandið versnaði samkvæmt skýrslunni í sjö af átta heimssvæðum árið 2025. Aðeins í Austur-Evrópu og Mið-Asíu batnaði það, þrátt fyrir yfirstandandi átök milli Úkraínu og Rússlands.
Súdan Átök í Ísrael og Palestínu Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Íran NATO Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira