Olíumengun í Kópavogslæk Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. júní 2026 21:06 Olían sást greinilega í læknum. Samsett/Aðsend Olíumengun í Kópavogslæk hefur vakið athygli íbúa í bænum. Einn þeirra segir það ekki í fyrsta skipti sem einhvers konar mengun berst í lækinn. „
Við hjónin göngum dalinn nærri daglega og þetta kemur fyrir af og til að maður verður var við að það er eitthvað sem fer í lækinn. Þetta var óvenju mikið og lykt sem fylgdi þessu, megn olíulykt,“ segir Hanna Fríða Jóhannsdóttir, íbúi í Kópavogi. Hún birti myndir af olíumenguninni í læknum í Facebook-hóp íbúa hverfisins. Mengunin sást hvað best á brúnni vestan við Digranesveg en eftir því sem Hanna Fríða gekk lengra virtist mengunin leysast upp í læknum. Hún hyggst tilkynna mengunina til Kópavogsbæjar. „Það er heilmikið lífríki í læknum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem eitthvað fer í lækinn,“ segir hún. Í frétt Rúv kemur fram að Kópavogur hlaut 122 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu undir forystu Umhverfisstofnunar. Styrkinn átti að nýta til að koma vatnsgæðum Kópavogslækjar í betra efnafræðilegt ástand. Vert er að taka fram að verkefnið nær yfir sex ára tímabil en aðeins eitt og hálft ár er liðið frá upphafi þess. Af 122 milljónunum hafa 28 milljónir króna verið nýttar. Hvítur lækur Á árum áður hefur töluvert verið fjallað um Kópavogslæk og mengun sem leitar út í hann. Árið 2011 mældist saurkólígerlamengun langt yfir ásættanlegum mörkum, nokkrum mánuðum eftir að Kópavogsbær ákvað að gera verulegt átak í því að finna rangtengingar skólplagna. Umræddar tengingar eru þegar skólplagnirnar eru tengdar inn á regnvatnslagnir og fer skólpið óhreinsað í lækina í stað þess að fara í skólphreinsistöð. Þá vakti það einnig töluverða athygli árið 2013 þegar lækurinn varð hvítur vegna mengunar og árið 2018 þegar málning fór í niðurfall á lóð Málningar hf.
Umhverfismál Kópavogur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira